Samvinnan - 01.03.1928, Blaðsíða 93
SAMVINNAN
87
heill og- velmegnn sveitanna, sem og þjóðarheildarinnar.
Hann hygst að gera það með því að stuðla til þess, að
gagnlegum og hollum alþýðuskólum verði komið upp í
hinum dreifðu bygðum landsins, svo að æskulýðurinn,
sem fæðist og vex upp í sveitunum, þurfi ekki að
sækja til kaupstaðanna rándýra og stundum ekki sem
hollasta mentun. Staðgóð og þroskandi upplýsing og
sonn mentun eru þau vopn, sem jafnan eru nauðsynleg
til sóknar og varnar í lífsbaráttunni. Og án þeirra mætti
helst enginn skynsemigæddur maður ganga át í lífið.
Hann hygst að gera það með því að tryggja sveitamönn-
um, eins og verða má, afurðasölu þeirra. Hann hygst að
gera það með stórlega bættum samgöngum á sjó og
landi. Og hann hygst að gera það með hverju því móti,
sem mögulegt er og ástæður frekast leyfa.
Gegn mörgum af þessum umbótum á sviði land-
búnaðarins og sveitalífsins stendur nú, sem kunn-
ugt er, andstöðuflokkur Framsóknarmanna, íhaldsflokk-
urinn. Hann virðist halda í flest, sem koma mætti til
viðreisnar búnaði vorum og sveitalífi. Það virðist ekki
vera lífsskoðun þessa virðulega stjómmálaflokks, að
nokkur brýn nauðsyn kalli á endurreisn farsælasta at-
vinnuvegaríns í landinu, þ. e. landbúnaðarins. Enda er
það sannast, að íhaldsflokkurinn er fyrst og fremst mál-
svari og pólitískur hagsmunaflokkur stórútgerðarmanna,
kaupmannastéttarinnar og hinna ríkustu borgara þjóðfé-
lagsins, þeirra manna, sem einkum gætu tileinkað sjálf-
um sér svokallað siðalögmál nítjándu aldarinnar ofan-
verðrar, er svo hljóðar:
„Hver er næstur sjálfum sér, það sáluhjálpameglan
er; hver maður á að hugsa um sig, hvað koma aðrir menn
við mig. Hvað sem þú gjörir heimi í, þá hafðu töluvert
upp úr því“, o. s. frv.
En til sveitamanna hrópa þeir: „Sjálfur leið þú sjálf-
an þig“. Og þeim er þetta alvara, íhaldsmönnunum, lang-
flestum að minsta kosti. Að undanförnu hefir íhalds-
flokkurinn beitt sér á móti því t. d., að strandferðimar