Samvinnan - 01.03.1928, Blaðsíða 70
64
S A M V I N N A N
málin, enska og þýska, svo og hagfræði og vélritun, enda
er námstíminn hér lengri. Skólinn byrjar í nóvember og
endar 31. mars. Nemendur verða að vera fullra 18 ára og
hafa unnið í kaupfélagi minst 2 ár.
Danskir kaupfélagsstjórar hafa með sér félagsskap.
Félagi þessu er skift niður í deildir eftir héruðum. Fé-
lagsmenn í hverri deild koma saman einu sinni á ári sér
til skemtunar. Auk þess halda þeir fundi 2—3 á ári til
þess að ræða áhuga- og framfaramál sín og félaganna.
Eg var svo heppinn að vera á einni slíkri samkomu, er
kaupfélagsstjórar héldu í júlímánuði, og þótti mjög
skemtilegt að heyra umræður þeirra. Þá er þeir komust
að því, að meðal þeirra væri íslendingur, er væri í Dan-
mörku til þess að kynnast dönskum kaupfélögum og
starfsemi þeirra, spurðu þeir mig margs frá samvinnu -
hreyfingunni heima og gengi hennar og þrifum. Reyndi
eg eftir bestu getu að greiða úr spurningum þeirra, og
þótti þeim við vera furðu langt á veg komnir, er þeir
heyrðu, að við hefðum samband og samábyrgð, einkum
þó þeir, er enga hugmynd höfðu um það, að við á íslandi
þektum nokkuð til samvinnu eða kaupfélagsskapar. Sam-
ábyrgðin er talin höfuðeinkenni samvinnunnar í Dan-
mörku; nálega ekkert félag er án hennar.
Að síðustu langar mig til þess að minnast ofurlítið
á kaupfélagið í Kaupmannahöfn. Félag þetta hefir smátt
og smátt, með óþreytandi elju og dugnáði félagsmanna og
starfsmanna, rutt sér braut gegnum marga erfiðleika,
hleypidóma almennings og harða samkepni kaupmanna.
En það hefir sannast á félaginu, að ekki verður ófeigum
í hel komið, og nú eru kaupmenn farnir að sjá, að félagið
dafnar ætíð betur og betur og hafa lagt niður ofsóknirnar
að mestu.
Eins og áður er sagt, kom verulegur skriður á kaupfé-
lag Kaupmannahafnar (Hovedstadens Brugsforening)
1916. Það ár hafði félagið 48 deildir víðsvegar um borg-
ina. Á þessum 9 árum, frá 1916—1925, hefir félagið dafn-
að það mikið, að það hefir nú 33 útibú og 105 deildir á