Samvinnan - 01.03.1928, Blaðsíða 15
SAMVINNAN
9
verið því fylgjandi, að járnbraut yrði lögð til suðurlág-
lendisins þá þegar, og talið hana hið eina flutningatæki,
er fullnægt gæti þörf héraðanna austan fjalls. Þetta er að
því leyti gott, að það ber vott um, að augu manna eru að
opnast fyrir því, að nauðsyn sé á breyttum samgöngu-
tækjum. En undir því er mikið komið, að þegar skift er
um, sé tekið það besta, sem völ er á. Af því að engin
járnbraut hefir enn verið lögð á íslandi, hljóta þeir, sem
um þetta mál hugsa, að draga ályktanir sínar af reynslu
annarra þjóða, og þeirra sem flestra, en þó verður að
taka fullt tillit til íslenskra staðhátta. Það er því nauð-
legt, að upplýsinga sé aflað svo víða að sem unt er.
Þegar byrjað var að leggja járnbrautir, héldu margir,
að ekki þyrfti að leggja þjóðvegi að neinum mun, þar sem
járnbrautir væru. En þetta heflr reynst misskilningur.
Víða í Vesturheimi liggja venjulegir akvegir meðfram
járnbrautunum, svo tugum mílna skiftir. Flutningur sá,
sem fram fer á gömlu vegunum, hefir nokkuð breytst, en
þörfin á þeim er engu minni en áður. Það sýnist því svo
að segja örvænt um, að með lagning járnbrauta sparist
Dokkur kostnaður við almenna vegi. Hitt hefir reynslan
aftur á móti sannað, að víða er hægt að spara járnbraut-
arkostnaðinn með öllu og komast af með góða bílvegi
eina saman. Sumstaðar, þar sem notkun bíla er enn í byrj-
un, svo sem t. d. í Noregi, hafa þeir þegar orðið stuttum
járnbrautum hættulegur keppinautur. Og þeim heflr fjölg-
að óðfluga. Árið 1919 voru í Noregi alls ca. 7000 bílar.
1924 voru þeir orðnir 28000. Hefir tala þeirra því fer-
faldast á b árum. Er nú til einn bíll handa hverju hundr-
aði íbúa. Mjög má þó bílum fjölga enn í Noregi, ef þeir
eiga að verða eins margir að tiltölu við fólksfjölda og þar
sem þeir eru flestir. Notkun vöruflutcingabíla hefir aukist
mjög, og eru þeir víða notaðir til allra vöruflutninga, þar
sem vegalengdin er ekki meiri en 50 km. Ferðafólk sæk-
ist mjög eftir „rute“bílunum svonefndu, og er bílafélögun-
um oft veittur ríkisstyrkur til að halda uppi föstum áætl-
unarferðum. Árið 1924 óku „rute“-bílarnir á norsku þjóð-