Samvinnan - 01.03.1928, Side 49

Samvinnan - 01.03.1928, Side 49
S A M V I N N A N 43 . . svefninn endalaus umgirðir þeirra dofinn haus“. Og í bræði sinni kveður hann upp þann þunga dóm, að svo sé að sjá,sem þetta land byggi tóm „skuggafífl og þokuþjónar“. Þessi ummæli Eggerts eru að vísu nokkuð almenns eðlis. Þau vitna um ólgu 'í blóði heithuga æskumanns. Þar eru tákn ósvikinna og einlægra tilfinninga. Svo talar sá, sem sjálfur er hrifinn og vill hrífa aðra. En Eggert var meira en ádeilumaður. Hann gjörði sér glögga grein fyrir sínu heitasta áhugamáli. Og þetta mikla mál var viðreisn og efling landbúnaðarins. Hann vildi gjöra Is- lendinga að bændaþjóð, rækta landið og skapa heilbrigt sveitalíf á grundvelli fomrar menningar. Vert er að gefa því gaum, hver hann var þessi maður, sem gerðist svo ákveðinn forvígismaður landbúnaðarins, sem raun varð á. Hann var eigi hugsunarlaus fleiprari, sem fór eftir dutlungum einum. Nei, þetta var gáfaður og alvöru- gefinn vísindamaður, alinn upp með gætnum mönnum og glöggum, var sjálfur reyndur að atorku og samvisku- semi í hvívetna. Og full skil kunni hann á málum þeim, er hann tók nú til meðferðar. Allra sinna samtíma- manna var hann kunnugastur landi og þjóð, sögu og menningu. Eggert var alinn upp í því héraði landsins, Snæfells- nesi, þar sem mest var rekinn sjávarútvegur, að Suður- nesjum frátöldum. Skorti hann því eigi kunnugleik á þeim atvinnuvegi. Gat og engin hreppapólitík valdið því, að hann bæri kala til sjómanna og starfs þeirra. En ein- mitt af því að hlutdrægni getur naumast komið til greina, er eftirtektarverð afstaða hans. Hann gjörðist ákveðinn talsmaður landbúnaðarins gegn sjávarútveginum. Ef til vill hefir hann fyrstur manna bent á þá hættu, er stafar af flutningi fólks úr sveitunum til sjávarþorpanna. Kem- ur þetta greinilega fram í Ferðabókinni. Þar talar hann um „misbeiting fiskiveiðanna til tjóns fyrir landbúnað- inn“. Hann lítur með velþóknun til fyrri tíma, er „ís-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.