Samvinnan - 01.03.1928, Side 47

Samvinnan - 01.03.1928, Side 47
SAMVINNAN 41 Á ferðum sínum gafst honum færi á að kynnast fari al- mennings, mentun, atvinnuvegum og allri háttsemi. Jafn- framt rannsakaði hann lífsskilyrði þau, er landið býður bömum sínum. Hann átti því traustari grundvöll en flest- ir aðrir til að byggja á þj óðmálaskoðanir sínar. Við reynslu og glögga dómgreind bættist það, að hann var skáld og hugsjónamaður. Það þjóðlíf, sem hann vildi skapa á íslandi var því ekki eingöngu miðað við nytsemi. Þar var fegurðinni ætlað veglegt sæti. Því vildi hann fá þjóðinni þau störf í hendur, er best skilyrði veittu til andlegrar þroskunar. Tvent sannfærðist Eggert m. a. um á ferðum sínum. Annað var það, að ísland væri miklu betra land og byggi- legra en talið hafði verið, hitt, að þjóðin kynni lítt að hagnýta sér gæði þess. Sem ættjarðarvinur fyltist hann sárri gremju yfir ýkjusögnum þeim, er breiddar höfðu verið út um íslensku þjóðina, enda voru þær herfilegar. I erlendum ritum, er út höfðu komið fyrir daga Eggerts, segir um íslendinga, að þeir séu óþrifnir og saurlífir, búi í jarðhúsum, lifi mest á úldnum fiski og hafi eigi önnur húsdýr en rófuskelta loðhunda. Jafnframt er þess getið, að þeir séu allmiklir fyrir sér og verði oft 100—200 ára gamlir. Meðal annara voru það erlendu kaupmennimir, sem launuðu íslendingum fóstrið með söguburði þessum. Það sá Eggert og kvað í reiði sinni: „Þó að margur upp og aftur Island níði búðarraftur meira má en kvikinds kjaftur kraftur guðs og sannleikans“. Enn sárar tók hann rógmælgin, er hann vissi, að hún var eigi ástæðulaus með öllu. Og hann einsetti sér að leysa úr læðingi þann forna kraft, er með þjóðinni leynd- ist, endurreisn tungunnar og bókmentimar, skapa nýja menningu og nýja þjóð. Til þess að gjörast forgöngumaður er það jafnan fyrsta skilyrðið að treysta á mátt og gildi þess, sem unnið er fyrir. Vonleysi og ótrú á framtíðarmöguleikum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.