Samvinnan - 01.03.1928, Qupperneq 63
SAMVINNAN
57
■W
launin. Sama var að segja um húsnæðismálið. Vinnuveit-
endur létu reisa skýli fyrir verkamenn sína, leigðu þeim
íbúð, og drógu húsaleiguna frá laununum. Segði vinnu-
veitandinn upp vinnunni eða færu verkamenn af sjálfs-
dáðum, urðu þeir að flytja úr íbúðinni daginn eftir. Þeir
áttu því á hættu að verða í senn atvinnulausir og hús-
næðislausir. Þetta hvorttveggja varð svo illræmt, að lög-
gjafarvaldið skarst einna fyrst í leikinn á þessu sviði.
Sorglegastar voru þó afleiðingar hinnar frjálsu sam-
kepni fyrir konur og börn. Iðjuhöldarnir þurftu ekki full-
tíða menn til að stjóma vélunum. Þeir notuðu óspart kon-
ur og böm. Það var ódýrasta vinnuaflið, og um leið gátu
þeir lækkað laun karlmanna eftir vild sinni. Verkamenn
urðu, sökum atvinnuleysis, að láta konur og böm vinna í
verksmiðjunum. Þetta hafði skaðlegustu afleiðingar fyrir
alt heimilislíf og uppeldi æskulýðsins. 1 raun réttri var
oft og einatt ekki um neitt heimilislíf að ræða. Konur
urðu að vinna langt fram á nætur og gátu því ekki sint
heimilisstörfum. Húsakynni verkalýðsins í nýju iðnaðar-
borgunum voru af lélegustu gerð, þröng og óholl, venju-
legast eitt lítið herbergi fyrir hverja fjölskyldu. Mæður
og börn voru oft við iðju sína hvert á sínum stað og
komu einatt ekki saman að kvöldi. Börnin voru undir
eftirliti vandalausra þjóna verksmiðjunnar, en ekki for-
eldra sinna. Konur urðu að skilja ung börn sín eftir
heima allan daginn hjá eldri systkinum eða fá grannkon-
ur sínar til að líta eftir þeirn. Böm, sem voru komin á
legg, urðu að leika lausum hala í siðspillingu og götulífi
útborganna, þar til þau voru sett í verksmiðjumar. Stúlk-
ur uxu upp án þess að læra einföldustu heimilisstörf.
Börnin ólust upp í agaleysi og urðu foreldrum sínum
snemma ofjarlar. Það leyndi sér ekki, að lélegt uppeldi og
heimilislíf, óholl húsakynni og verksmiðjuvinnan veikti
líkamskrafta kvenna og lamaði siðferðisþrek þeirra. 15
ára gamlar mæður voru ekki fáar, og dauðafæðingar voru
fjölmargar.
Börn voru látin vinna í verksmiðjum og námum. Þau