Samvinnan - 01.03.1928, Blaðsíða 82
76
SAMVINNAN
Einnig ætti að rannsaka, hvað hefir verið meðal
dagsverk 1 metratali í brautum þeim, sem lagðar hafa
verið vun landið 5—10 síðustu árin. Og borga það, þótt
mennimir svo ynnu meira. 3/4 af því, sem áynnist, ætti
svo að skiftast á milli mannanna eftir þeim hlutföllum,
sem áður eru nefnd, en l/4 rynni í sjóð til viðbótar kaup-
gjaldinu, ef einhverjir ófyrirsjáanlegir annmarkar á verk-
inu orsökuðu það, að kaupið næði ekki meðaltali. Á sama
hátt verður Alþingi að sjá um, að engin námu- eða iðnað-
arfyrirtæki séu rekin undir öðrum kaupmælikvarða en
þeim, að starfsmennirnir fái sína vissu hlutdeild í stofn-
uninni, hvort sem vel eða illa gengur.
Það flýtur af sjálfu sér, að skýrslur um þetta verð-
ur að gefa til Hagstofunnar á hverju ári, og hún verður
svo altaf að vinna úr þeim meðaltalið yfir 5—10 síðast-
liðin ár og tilkynna, hvert meðaltal sé í hverri grein á
hverju ári.
Eg vil svo biðja alla góða menn, sem elska landið
sitt og þjóðina, að athuga þessar tillögur mínar, styðja
þær, sem þeir aðhyllast, og lagfæra hinar, svo að gagni
megi koma fyrir land og lýð. Það er sannfæring mín, að
þjóðin yrði sælli með þessu fvrirkomulagi, sælli, með því
að hver einstaklingur bæri meira úr býtum, þegar hann
ynni vel. Og sérstaklega lít eg svo á, að enginn hafi rétt
til að útiloka annan frá hans hlutdeild í þeim náttúrugæð-
um, sem landið hefir að bjóða, eftir getu og afstöðu
þeirri, sem hann hefir til að njóta þeirra, og þeirri menn-
ingu, andlegri og líkamlegri, sem því fylgir, að sækja heill
sína og hamingju í skaut náttúrunnar, en ekki til mann-
anna. Sælli með því að vera laus við verkföll og verkbönn,
með öllum þeirra hörmungum.
Það er líka sannfæring mín, að mennirnir séu allir
af sama toga spunnir og að það eigi að verða eitt sauða-
hús og einn hirðir, og að það verði, en því fyr, sem
við vinnum betur að því.
Vilhjálmur Einarsson,
Bakka í Svarfaðardal.