Samvinnan - 01.03.1928, Page 91
S A M V I N N A N
85
hefir yfirleitt miklu meiri andleg og líkamleg þroskunar-
skilyrði í sér fólgin heldur en hin einhliða starfsemi kaup-
staðalífsins.
Jeg ætla nú aðeins að minnast ögn á tildrög fólks-
flutningsins úr sveitunum til kaupstaðanna. Og kemst eg
þá strax að þeirri niðurstöðu, að aðalorsökin liggi í hin-
um mikla vexti sjávarútvegsins 25—30 síðustu árin. Má
svo að orði kveða, að hann sé nú rekinn með hinum full-
komnustu nýtískutækjum. Enda hefir um langt skeið
ekkert verið tilsparað, til að rétta honum hjálparhönd.
Er svo að sjá, eins og fjármálamenn vorir og lánsstofn-
anir hafi einskonar tröllatrú á sjávarútveginum. Og
starfsfé bankanna hefir að mjög miklu leyti gengið til
lána í útveginn. Hinsvegar verður því ekki neitað, að
landbúnaðurinn hafi verið sannkölluð hornreka hjá fjár-
málamönnum vorum og lánsstofnunum að undanförnu.
Telja svo kunnugir menn, að landbúnaðurinn hafi t. d.
ekki yfir 15—18% af veltufé beggja bankanna. Enda
hafa sveitirnar að mestu farið varhluta af útlánum
þeirra. Bændur hafa ekki fengið nauðsynlegt fjáiTnagn
til þess að umbæta jarðir sínar, hvorki hvað jarðrækt
snertir eða húsabætur. Þeir einir sveitabændur hafa því
getað umbætt jarðir sínar, svo nokkru nemi, sem sjálfir
hafa verið efnaðir menn. Hinir, og það er allur fjöldinn,
hafa orðið að sætta sig við það hlutskifti, að búa sem
mest á óræktuðu landi og við léleg húsakynni, að öðru
leyti en því, sem þeir af sjálfsdáðum hafa orkað að laga
til hjá sér. Af þessu leiðir svo oft það, að ungu mennimir
í sveitinni fá ótrú á landbúnaðinum. Þeir örvænta um, að
sveitalífið geti orðið þeim framtíðarvegur, og þeim finst
að þá sé réttara að leita gæfunnar á öðrum stöðum, t. d.
í Reykjavík, þar sem lífsskilyrðin, í fljótu bragði og að
órannsökuðu máli, virðast vera aðgengilegri og betri.
Sökum fólksíæðar í mörgum sveitum, er þar fremur fátt
um félagslíf og skemtanir. Unga fólkið, sem nú á tímum
gerir meiri kröfur til lífsins en áður þektist, svo í þessu
efni sem öðrum, þolir illa glaðværðarleysið og deyfðina.