Samvinnan - 01.08.1968, Page 32
Rörmjaltakerfi sem ýmsir íslenzkir kúabœndur hafa tekið í notkun.
Við fengum tvo bændur í
Rangárvallasýslu til þess að
gefa hana samhliða venjuleg-
um fóðurblöndum. Ekki kom
annað í ijós en kýrnar nýttu
fóður þetta vel og héldu heilsu
sinni og framleiðslu.
60 hundraðshlutar íslenzk
framleiðsla!
Kúafóðurblöndur þær sem
SÍS blandar í Þorlákshöfn hafa
inni að halda 15—20% inn-
lend efni eins og er. Þarna er
mikill munur.
í öllum fuglafóðurblöndum
er grasmjöl fastur liður og
svínum má gefa allmikið gras-
mjöl í blöndum.
Hvernig getum við náff því
marki?
í umræddri blöndu höfum
við 40% grasmjöl, 8% tólg, 12%
fiski- og hvalmjöl, 37% maís og
3% steinefni.
Grasmjöl getum við framleitt
hvar sem er á landinu.
Sláturhúsin gætu unnið
feitina í stað þess að henda
henni eða selja út úr landi fyr-
ir lítið verð.
Feitin er stórkostlega verð-
mætt efni til fóðurs. Eitt kg.
af dýrafeiti eða lýsi samsvar-
ar í fóðurgildi þrem kg. af
maís.
í Danmörku eru kúafóður-
blöndur sem innihalda 7%
feiti taldar verðmætari heldur
en þær sem ekki eru bættar
þannig, vegna þess að feitin
eykur mjólkurmagn og gæði.
Sláturhúsin geta unnið feit-
ina í stað þess að henda henni
og grasmjölsstöðvarnar geta
síðan þurrkað sláturúrganginn
og fengið þannig verðmætt
kjöt- og beinamjöl. Auk þess
er grasmjöl sú fóðurtegund
sem hvað bezt hentar til þess
að soga í sig fljótandi efni svo
sem feiti og melassa.
Við sjávarsíðuna er ávallt
til gnægð fiskimjöls af ýmsum
tegundum en það ásamt hval-
mjöli eru beztu proteingjaf-
arnir fyrir jórturdýr og annan
búpening sem völ er á.
Síldarlýsi hefur sama gildi
fyrir fóðrið og dýrafeiti og gef-
ur auk þess A og D vítamín.
Þangmjöl má nota allt að
2% í fóðurblöndur, það er kol-
vetnafóður en hefur auk þess
ýmis snefilefni og vítamín.
Ef öruggur markaður fengist
hjá fóðurblöndunarstöðvunum
myndi þangvinnsla ef til vill
borga sig.
Mjólkurbúin vinna töluvert
magn af undanrennudufti á
hverju ári. Það er flutt út fyrir
lágt verð. Síðan flytjum við
það inn aftur ásamt feiti í til-
búnu erlendu kálfamjólkur-
dufti.
Síðast en ekki sízt eru gerð-
ir kögglar úr hraðþurrkuðu
grasi og öðru grænfóðri svo
sem höfrum. Ríkisfyrirtækið
„Fóður og fræ“ í Gunnarsholti
á Rangárvöllum hefur fram-
leitt þessa vöru í nokkur ár og
hefur eftirspurn farið hrað-
vaxandi vegna þess hve vel
bændum líkar að fóðra með
þessari vöru og vegna þess hve
flutningsgeta vörubifreiða nýt-
ist vel, þegar flytja þarf milli
landshluta.
Grænfóðurkögglar henta
sérlega vel fyrir sauðfé og þá
einkum til fengitímaeldis og
vorfóðrunar. Geta kögglarnir
nær alveg komið í staðinn fyr-
ir fóðurbæti við fóðrun sauð-
fjár.
Þegar miðla þarf heyfóðri
milli landshluta er ekkert
form heppilegra í alla staði
heldur en kögglar. Hvert kg.
er verðmætara en í heyi og
fyrirferðin er svipuð og í korn-
vöru.
Nú er unnið mjög mark-
visst að því erlendis að köggla
hraðþurrkað gras svo gróft að
hægt sé að gefa það jórtur-
dýrum eingöngu. Geta menn
þá vélvætt fóðrun nautgripa
alveg.
Hér á landi ætti ávallt að
vera til gnægð köggla i öllum
landshlutum. Við verðum að
hugsa eins og hyggnir bænd-
ur, eiga ávallt til fyrningar,
sem hægt er að miðla af þeg-
ar heyöflun bregzt í einhverj-
um landshluta.
Hvaff hefur veriff gert til þess
að nýta þessa möguleika?
Á tilraunastöð ríkisins á
Sámsstöðum í Fljótshlíð barð-
ist Klemenz Kr. Kristjánsson
í 40 ár fyrir íslenzkri fóður-
bætisræktun í formi korns og
grasmjöls. Hafði hann korn-
ræktartilraunir öll sín ár þar
og bjó til grasmjöl nokkur hin
síðari ár. í Fljóthlíð eru skil-
yrði til kornræktar góð og svo
er um fleiri staði svo sem und-
ir Eyjafjöllum og allar götur
austur í Hornafjörð og einnig á
Suðurnesjum. En áhugi fyrir
kornrækt sér er hverfandi lít-
ill á meðan erlent korn er hér
eins ódýrt og raun ber vitni.
Árið 1961 fór Samband ís-
lenzkra samvinnufélaga að
framleiða grasmjöl á Stórólfs-
vallarbúinu í Hvolhreppi og
hefur haldið þvi áfram síðan.
Tilgangur Sambandsins var
fyrst og fremst sá að stuðla
að fjölbreyttari landbúnaðar-
framleiðslu, minnka innflutn-
inginn á erlendri fóðurvöru og
það vonaði að íslenzkir til-
raunamenn myndu hefja fóð-
urtilraunir og aðrar rannsókn-
ir á þessari vöru til þess að
finna hvernig helzt mætti
nota grasmjöl við íslenzkar að-
stæður. Mætti svo að lokum
bera saman framleiðslukostn-
að og notkunarmöguleika við
innfluttar fóðurvörur. Svo fór,
að áhugi reyndist lítill sem
enginn, og hafa ekki verið gerð-
ar aðrar rannsóknir á notagildi
íslenzks grasmjöls en áður-
nefnd tilraun í Laugardælum
og eru niðurstöður hennar
óbirtar. Það var fyrir áeggjan
Búnaðarþings að Rannsóknar-
ráð landbúnaðarins lét fara
fram þessa tilraun. Stóð Gunn-
ar Bjarnason á Hvanneyri að
tillögunni, enda hefur hann
um áraraðir verið hvatamaður
að hraðþurrkun og notkun
grasmjöls í fóðurblöndur.
Opinber stuðningur hefur
enginn verið til þessarar starf-
semi hvorki í formi styrkja né
lána og frekar hefur hin opin-
bera ráðunautaþjónusta reynt
að draga úr okkur kjarkinn
heldur en að hvetja. Hafa ver-
ið notuð rök danskra og
norskra fóðurfræðinga, þeir
telja margir að ástæðulaust sé
að nota grasmjöl í kúafóður-
blöndur og að það sé engin
þörf á því þar.
í heimalöndum þeirra er það
of dýrt miðað við korn til þess
að réttlæta notkun þess í kúa-
fóðri. Þar beinist öll viðleitni
fóðurfræðinga og tæknimanna
að því að hraðþurrka grænfóð-
ur í því skyni að vélvæða í
stórum stíl öflun kúafóðurs og
um leið að geta vélvætt gjaf-
irnar.
í þeirri viðleitni hafa þeir
rekizt á þá staðreynd að gefi
maður kú malað hraðþurrkað
gras í stað nokkurs eða alls
hluta grænfóðursins komi fram
meltingartruflanir og lækkun
á mjólkurfitu.
Hér á landi er viðleitnin allt
önnur. Við viljum að kýrnar
umsetji eins mikið af heyfóðri
og mögulegt er, vegna þess að
heimaaflað hey er ódýrasta og
jafnframt bezta fóður sem völ
er á.
Síðan þurfum við að hafa á
boðstólum maís og fóður-
blöndur með fóðurgildi 1 kg —
1 fóðureining og hæfilegt magn
steinefna og próteina. Þegar
grasmjöl er gefið sem hluti í
fóðurblöndu til viðbótar við
fullan heyskammt er það með
öllu skaðlaust og nýtist vel.
Á Stórólfsvallarbúinu gerði
Sambandið einnig tilraun til
kornræktar í allstórum stíl.
Veðráttan hefur síðan heldur
kólnað og kom í ljós að næt-
urfrost í ágústmánuði urðu það
tíð að kornræktin bar sig ekki
og urðum við að hætta. Land
Stórólfsvallarbúsins er mar-
flatt og ekkert skýhr fyrir
norðanáttinni.
Eins og áður er nefnt, setti
ríkið á stofn hraðþurrkun með
kögglapressu í Gunnarsholti
1964 í því skyni að reyna þessa
vinnsluaðferð hér á landi og
fá reynslu af vörunni. Lofar
þetta mjög góðu eins og áður
gat.
Um sama leyti var byrjað að
starfrækja þurrkara til gras-
mjöisvinnslu að Brautarholti á
Kjalarnesi. Framleiðslan fer
að mestu í fóðurblöndur Mjólk-
urfélags Reykjavíkur og til
fuglabænda í nærsveitum.
Um notkun á feiti er það að
segja að alveg vantar tilraunir
um magn og samsetningu
hennar í fóðurblöndur. Miklar
upplýsingar má eflaust fá frá
Danmörku. Aðalmálið er að
28