Samvinnan - 01.08.1968, Síða 51

Samvinnan - 01.08.1968, Síða 51
hátt og uppreisnin innan venjuiegrar fjölskyldu stendur yfirleitt aðeins yfir um skamma hríð — ungi maðurinn sem brýzt undan heimilisaganum þegar hann er átján ára er búinn að aðlaga sig hon- um með litlum breytingum þegar hann er tuttugu og tveggja ára — þá er venj- um og hefðum þjóðfélagsins yfirleitt að- eins afneitað um skamma hríð, en síð- an aftur tekið við þeim með smávægi- legum breytingum. Þessi seigla hinna sögulegu arfleifða, þessi hæfni þeirra til að aðlagast á nýjan leik jafnvel gjör- breyttum aðstæðum er meðal leyndar- dóma mannkynssögunnar, en hún er einnig söguleg staðreynd. Hvaða bylting var til dæmis ofsafengnari og algjörari en eyðilegging hins ódauðlega kínverska keisaradæmis, sem á sínum tíma átti upptök sín meðal stúdenta við háskól- ann í Peking? Og hversu mikið af venj- um og arfleifðum keisaraveldisins hefur nú ekki verið hafið til nýs vegs og virð- ingar af Maó formanni! Það sem gerir síðustu uppreisn æsk- unnar svo nýstárlega, á að minni hyggju fyrst og fremst rætur að rekja til þeirra kringumstæðna sem hún er gerð í. Það vill svo til, að örlagarík söguleg tíma- mót standa fyrir dyrum, tímamót rót- tækra umskipta, sem eldri kynslóðin hef- ur borið hitann og þungann af, en yngri kynslóðin er í einu og öllu hinn þiggjandi aðili. Þess gerist ekki þörf, að ég fjöl- yrði hér um þær byrðar sem eldri kyn- slóðin hefur orðið að taka á sig. Við er- um þeim þegar fyllilega nógu kunnug. Og aðrir tímar hafa komizt í kynni við svipaða erfiðleika. En hinar gerbreyttu aðstæður unga fólksins eru algjörlega nýjar. Og það er það sem gerir síðustu uppreisn æskunnar svo frábrugðna öll- um þeim sem á undan hafa farið. Áður fyrr sýndi unga fólkið ekki minni tímabundna óþolinmæði gagnvart hefð- bundnum kennisetningum, venjum og siðum, og ekki minni tímabundna and- stöðu gegn viðteknum trúarkerfum. En kringumstæðurnar stóðu í vegi fyrir því. Fjárráð þess voru ekki slík, að það gæti stofnsett eigin samfélög. Það náði yfir- leitt ekki að mynda stóra hópa. Það var dreift og háð því, hvað það varð snemma að fara að leita sér atvinnu. Háskólar voru fáir og smáir — þó að innan þeirra þróuðust annars, einkum á miðöldum, oft á tíðum margvíslegar byltingarkennd- ar hugmyndir. Langt var á milli borga, og flestir ungir menn voru starfandi í hinum óskyldustu atvinnugreinum, sem aítur dreifði áhugamálum þeirra. Loks er þess að minnast, að langt fram á síð- ustu öld voru árin og reynslan metin meira en æskan, og hið hefðbundna meira en hið nýstárlega. Nú á dögum gleðjumst við yfir „framförum“, „þró- un“ og jafnvel einföldum „breytingum“, en sögulega séð eru slík viðhorf þó nýj- ung. Og ennþá meiri nýjung er sú hug- mynd, að æskan eigi sérstakan rétt og að taka þurfi sérstakt tillit til hennar, jafnvel skríða fyrir henni og lofsyngja hana. Þeirri hugmynd var, að því er ég tel, fyrst beitt af ásettu ráði fyrr á þess- ari öld, er almenningsblöðin hófu mark- vissa baráttu fyrir því að afla sér auk- ins fjölda lesenda á venjumyndunar- aldri. Vegna þessara aðstæðna hefur upp- reisn æskunnar fram undir það síðasta ýmist verið máttlítil, skammvinn eða einangruð. Vegna breyttra aðstæðna á okkar dögum er hún kraftmikil, útbreidd og áberandi. Ástæðan er m. a. betri fjár- ráð unga fólksins nú en áður. Það er ekki lengur háð því að þurfa snemma að leita sér atvinnu. Því er safnað saman í stöðugt stærri hópa í stöðugt stærri há- skóla, þar sem það myndar tiltölulega samstæð stúdentafélög. Og ný og ný vígorð ýta undir háar hugmyndir þess, bæði um sjálft sig og byltingarkenndar hugmyndir sínar. Þessi framfaraslagorð þurfa ekki endilega að vera neitt mark- verðari en vígorð fyrri tíma, en þau eru þó óneitanlega meira sefjandi. Þannig virðist mér síðasta uppreisn æskunnar hvorki vera einstæð né á nokkurn hátt öfgakennd. Ég lít á hana sem ýkta útgáfu á alkunnu fyrirbæri, ýkta vegna sérstakra aðstæðna, en þetta fyrirbæri getum við þó ekki harmað, vegna þess að það er líffræðileg nauð- syn og reyndar frumskilyrði allra fram- fara — jafnvel þótt það géti einnig á stundum verið undanfari hnignunar. Sem slíkt verðum við að umbera það, og ef okkur fellur miður, þegar það gengur út í öfgar, þá er fyrsta skylda okkar sú að reyna að komast að raun um, hvað það er í kringumstæðunum sem veldur þróuninni. Fyrst þegar því er lokið get- um við reynt að draga úr öfgunum með því að breyta kringumstæðunum. Sumt í hinum nýju aðstæðum er vafa- laust þess eðlis, að því verður ekki breytt, og þá er þar einfaldlega um að ræða óumílýjanlegar afleiðingar af þjóðfélags- legum breytingum. En annað er hægt að lagfæra, og það tel ég vera hlutverk skynsamlegrar stefnu í skólamálum. í hinu flókna þjóðfélagi okkar tíma hafa kynslóðirnar alltof mikið að segja og kenna hver annarri til þess að höggva megi á tengslin milli þeirra. í heil- brigðu þjóðfélagi er ekki lagt bann við því sem ég vil kalla „rökræður kynslóð- anna“, líkt og á sér stað í Rússlandi, né heldur eru þær skipulagslausar eins og í Ameríku, heldur er þeim viðhaldið und- ir öruggri stjórn. 47 Reykjavík L

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.