Samvinnan - 01.08.1968, Side 66
Stjórnarhermenn í leit aS skœruliðum ferjaðir yfir fljót.
Þyrla sem stjórnarhermenn nota í baráttunni við skœruliða. Áhöfn
hverrar slíkrar þyrlu gengur undir nafninu „manndrápsflokkur
samband vinstriflokkanna til að rjúfa þá valdaeinokun, sem
flokkaskiptingin hafði framað þeim tíma haft. (Núverandi
flokkaskipun er samband stóru flokkanna tveggja, íhaldsflokks-
ins og Frjálslynda flokksins. Með samningi sín á milli hafa
þessir flokkar skipt með sér völdunum. Þeir útnefna til skiptis
frambjóðanda, sem síðan er kjörinn forseti Colombíu.)
Ætlun Camilos Torresar var að sameina vinstriöflin, allt frá
óánægðum frjálslyndum mönnum til marxista. Raunverulegur
umbótaflokkur hefur aldrei náð verulegri fótfestu í Colombíu,
og háklerkavald kaþólsku kirkjunnar hefur kæft allar tilraunir
til stofnunar kristilegs jafnaðarflokks.
Hin stóru og tiltölulega góðu dagblöð landsins, sem hingaðtil
höfðu látið sér nægja að kalla Camilo ,,fífl“, „ólátagosa" og
„agalausan prest“, reistu nú þagnarmúr um hann. Camilo, sem
brátt varð ein vinsælasta persóna landsins og fékk mikinn
áheyrendaskara á fundum sínum, fékk líka fljótlega lögregluna
á hælana, Barnaleg tilraun hans til að sameina umbótasinna
af öllum flokkum var talin ganga feti of langt. Hann hlaut
að vera kommúnisti, eða a. m. k. veitti hann vatni á myllu
þeirra.
Þeir miðstéttamenn, sem höfðu talið Camilo vera einhvers-
konar nýjan Bolívar (frelsishetja Suður-Ameríku) eða einskonar
colombískan John F. Kennedy, sneru nú baki við honum. Ásókn
kirkjunnar harðnaði, og jesúítastjórn sambands stéttarfélag-
anna, UTC, stimplaði hann trúníðing sem hefði „svikið móður
sína, kaþólsku kirkjuna." Meðan því fór fram deildu svo
hinir margklofnu vinstrimenn um, hvaða hópur ætti mestan
rétt á að nota nafn Camilos Torresar sér til framdráttar.
Camilo Torres hafði fengið nóg. Undir árslok 1965 hvarf
hann frá Bogotá. í janúar 1966 varð uppvíst, að hann hafði
gengið í lið með þjóðfrelsishreyfingunni.
Borgarastyrjöldinni í Colombíu er nefnilega ekki allsendis
lokið. Eftir friðarsamningana 1957 stóðu þúsundir ólæsra bænda
með vopn í hendi. Þeir höfðu lært að drepa — margir voru
orðnir ránmorðingjar eða morðóðir — en fæstir höfðu að nokkru
að venda nema vonlausri fátæktinni sem þeir höfðu horfið frá.
Sumir þeirra sneru til borganna, og þar hafa þeir smámsaman
horfið í los turgurios, í glæpaheim úthverfanna, því að atvinnu
er enga að hafa.
En margir héldu kyrru fyrir uppi í fjöllunum, þarsem þeir
héldu áfram manndrápum. Síðan 1957 hafa 24.000 manns verið
myrtir. Það er hin opinbera tala. Á sama tíma hefur castróismi
unnið á í Andes-héröðunum, og „glæpamennirnir“, hinir fyrr-
verandi „borgarastyrjaldarhermenn“, eru orðnir hugsjónamenn
í þjóðfrelsishreyfingunni.
í baráttunni gegn þjóðfrelsishreyfingunni er nú beitt miklum
herafla, þarámeðal þúsundum bandarískra hermanna, þjálf-
uðum til að berjast gegn skæruliðáhreyfingum, — hinum svo-
nefndu „drápssveitum" (killer teams).
Sérfræðingur Castros í slíkum málum, hinn nafnkunni Ernesto
„Che“ Guevara, lýsti því yfir, að Colombía skyldi verða „Víetnam
Suður-Ameríku“. Þyrlusveitir colombísku stjórnarinnar, gráar
fyrir járnum, hafa nú lagt undir sig flest þau svæði sem
kommúnistar réðu, og herstjórnin í Bogotá kveður ekki vera
eftir nema níu hinna 75 þjóðfrelsissveita, sem virkar voru 1962.
Camilo Torres gekk í lið með þjóðfrelsissveit sem starfar í
norð-austurhluta landsins, nálægt landamærum Venezuela.
Hinn 17. febrúar 1966 varð sveit þessi fyrir launsátri.
Stjórnarsveitirnar drápu 12 þjóðfrelsishermenn. Einn hinna
föllnu var Camilo Torres.
Fregninni um dauða hans var fyrst tekið með vantrú; van-
trúin breyttist í vissu, og ákveðnar stéttir glöddust, aðrar syrgðu.
Stúdentar efndu til mótmælaaðgerða í Bogotá. Fjöldi vinstri-
manna í Rómönsku Ameríku grét dauða hans. Lýðskrumarinn
og fyrrverandi einræðisherrann, Rojas Pinilla hershöfðingi,
sem oft hefur getað gert sér mat úr óheillum ríkisins og stefnir
á ný að fasistísku einveldi, gerði Camilo Torres hikstalaust að
píslarvotti flokks síns við forseta- og þjóðþingskjörið 1966.
Óhjákvæmilega sjá flestir í ævi Camilos Torresar átakanlegt
dæmi um ókleifa örðugleika umbótasinna í Colombíu. Heims-
frægur hollenzkur vísindamaður, karmelítapresturinn Irineo
Rosier, sem undanfarin fjögur ár hefur verið prófessor í þjóðar-
sálfræði við Þjóðanháskólann í Bogotá, telur þó einsog fleiri
órólegir kaþólikkar, að örlög Camilos Torresar hafi haft sitt
að segja fyrir þróunina sem nú er að verða í Colombíu.
„Camilo vakti colombísku þjóðina til lífsins", segir dr. Rosier,
„og hann knúði núverandi stjórnarkerfi til vinsamlegri afstöðu til
urnbóta. Ef stjórnmálamennirnir standa ekki við kosningalof-
orðin frá kosningabaráttunni 1966, endar það með skelfingu.
Camilo Torres sýndi lægri stéttunum í Colombíu, að stjórnmála-
menn eru ekki allir gersneyddir hugsjónum."
„Myndin sem herstjórnin sýndi af gröf Camilos, sem annars
er haldið leyndri," heldur dr. Rosier áfram, „sýndi kross á leiði
hans. Þessi mynd segir meira en háværar ásakanir mótstöðu-
mannanna á hendur uppreisnargjarna prestinum.“
í nóvember 1966 var stofnuð ný þjóðfrelsissveit í olíuauð-
ugum héruðum Norður-Colombíu. Hún hlaut nafn af Camilo
Torres. Á liðnu ári var stofnað til Kristilegrar hreyfingar bylt-
ingarsinna. Þessi vinstrisinnaða hreyfing hefur sótt „uppörv-
un í hetjulegt fordæmi séra Camilos Torresar, þarsem hann
sýndi nýja leið til framkvæmdar hinni suður-amerísku byltingu."
Þó sæta kannski mestum tíðindum hinar fjölmörgu „Camilo
Torres-nefndir“ víðsvegar um Rómönsku Ameríku; þessar
nefndir voru settar á laggirnar af vinstrisinnuðum kaþólskum
prestum og marxískum stjórnmálamönnum.
Hin magnaða asahláka innan kaþólsku kirkjunnar í Rómönsku
Ameríku er kannski meginorsök þess, að Páll páfi 6. — helzti
staðgengill Krists — afréð að heimsækja þennan mikilvæga
hluta af umráðasvæði sínu í ágústmánuði. Hann kvaðst vilja
hafa persónuleg kynni af „hinni fátæku mannmergð Rómönsku
Ameríku sem væntir sér nýs félagslegs réttlætis."
Á sama hátt og hinn fallni skæruhernaðarsnillingur Ernesto
„Ohe“ Guevara er orðinn píslarvottur Castro-byltingarhreyfing-
arinnar er hinn fallni prestur Camilo Torres orðinn einingar-
tákn hinnar byltingarsinnuðu kirkju.
H. P. þýddi.
62