Samvinnan - 01.08.1970, Side 8
Vdduð þér bíl ef tir
þœgindum sœtanna
þyrftuð þér ekki
að hugsa yður um
VOLVO
Sœtin eru stórkostleg
Suðurlandsbraut 16 • Reykjavík • Simnefni: Volver • Simi 35200
þegar slíkt kemur ekki að sök.
Mér er ráðgáta, hvernig á þess-
ari fækkun lesendabréfa stendur,
því ég þykist viss um, að lesend-
ur séu langtífrá allir sammála
öllu sem í ritinu birtist, og ekki
eru þeir heldur allir jafnánægðir
með það að öðru leyti. Hví ekki
að láta óánægjuna koma fram, eða
bera fram vinsamlegar ábending-
ar? Við lofum að birta bréfin, þó
við förum kannski ekki eftir
hverri einustu ráðleggingu sem
okkur berst! Eins getur verið
uppörvandi að fá endrum og eins
fréttir af jákvæðum viðbrögðum
lesenda, fá að heyra í þeim þegar
þeir eru af einhverjum ástæðum
sérlega ánægðir með eitt eða
annað.
Með öðrum orðum: greinar fá-
um við fyrirhafnarlítið, en les-
cndabréfin mættu vera miklu
fleiri.
Lengi hefur staðið til að helga
eitt hefti Samvinnunnar íþrótt-
um og útilífi; það kom til tals
strax árið 1967, en af því hefur
ekki orðið ennþá vegna ásóknar
málaflokka, sem þóttu meir að-
kallandi, og er að vísu álitamál
hvað sé mest aðkallandi. Samt
held ég, að lofa megi hefti um
þessi efni ekki síðar en á næsta
ári.
Greinaflokkur um „stjórnun
landsins" væri ákaflega þarfur og
fróðlegur aflestrar, en hann
þyrfti rækilegan undirbúning og
allvíðtækar rannsóknir, svo varla
má búast við honum fyrr en eftir
eitt til tvö ár, en hugmyndin er
vissulega komin á verkefnaskrá
hjá okkur.
Með þökk fyrir góðar tillögur
og uppörvun.
Sigurður A. Magnússon.
SMÆLKI
Thomas Eclison (1847—
1931), uppfinningamaðurinn
frægi, átti einbýlishús í Flórida,
þar sem hann hafði komið fyrir
öllum þeim nýjungum sem yf-
irleitt gátu komið að gagni í
hýbýlum og görðum. Þegar
vinir hans komu í heimsókn,
voru þeir ævinlega fullir aðdá-
unar yfir hinum margvíslegu
þægindum og liagkvæmu til-
færingum hjá honum.
Uti í garðinum var samt
hverfihlið, sem allir urðu að
fara gegirum, og það reyndist
vera óvenjulega þungt í vöfum.
Enginn gestur komst hjá því að
hugsa með sjálfum sér, að hér
væri að finna einustu óþægindi
heimilisins. Dag nokkurn kom
kornung stúlka í heimsókn.
Hún undraðist líka hið þunga
hlið, en ólíkt öðrum gestum
áræddi hún að spyrja húsbónd-
ann:
„Herra Edison, allt hjá yður
er svo dásamlegt og fullkomið
— nema þetta hverfihlið. Af
hverju er það svona ægilega
þungt? Og af hverju er það
þama yfirleitt?"
„Kæra bam,“ sagði Edison
hlæjandi. „Það má alls ekki
8