Samvinnan - 01.08.1970, Qupperneq 43
höfunda ægir saman, og eins notar hann
mjög myndir til að styðja textann. Sjálfur
fullyrðir hann, að bókin sé úrelt form miðils
(með miðli er hér átt við allt, sem miðlar
upplýsingum, t. d. sjónvarp og útvarp; bókin
er einstaklingsbundinn miðill og sömuleiðis
málverkið), en ekki vegna bókarinnar sjálfr-
ar, heldur sé hin bóklega hugsun eða línu-
hugsun úr sögunni. Það sem átt er við með
línuhugsun má kannski sjá með samanburði.
Hinn frumstæði maður er ekki línuhugs-
andi. Skýrt og greinilegt orsakasamhengi
hlutanna er honum framandi. Hann lifir í
heimi goðsögu, í samfélagslegum samvistum
við meðbræður sína af sama kynflokki.
Línuhugsun bókarinnar kemur með skýrt
afmarkað orsakasamhengi, þ. e. upphaf og
endi allra hluta.
Heimspeki McLuhans mætti kalla tækni-
lega nauðhyggju (technical determinism),
þ. e. tæknilegar nýjungar hafa verið meiri
áhrifavaldar í mannlegum samfélögum en
allt annað. Hér virðist vera um hversdags-
leg sannindi að ræða. En þessi hversdags-
legu sannindi öðlast meiri dýpt, þegar þjóð-
félagslegar breytingar eru athugaðar í þessu
ljósi úr nálægð.
í bók sinni „Vetrarbraut Gutenbergs"
heldur McLuhan því fram, að sú staðreynd,
að unnt var í lok miðalda að prenta bækur
í fjölda eintaka, hafi haft meiri heimssögu-
leg áhrif en innihald þeirra bóka, sem ritað-
ar hafa verið. Hin prentaða bók breytti allri
hugsun manna. Hún jók á einstaklings-
hyggju og þjóðerniskennd. Hún gerði siða-
skiptin hugsanleg. Með prentun bóka í
fjölda eintaka gat maðurinn lagt stund á
einstaklingsbundna hugsun. Öll skynjun
hans breyttist frá því sem áður var, þ. e.
sjónskyn hans þróaðist sérstaklega, svo og
línuhugsunin. Öll vestræn menning (eða sið-
menning) frá lokum miðalda fram á
nítjándu öld hefur lagt sérstaka áherzlu á
sjónskynið og þar með rofið jafnvægið, sem
ríkti þegar maðurinn notaðist jafnt við öll
skynfæri sín til að eiga samskipti við aðra
Miðlar vekja okkur sérstök hlutföll
skynjunar með því að breyta umhverfi
okkar.
Bókin ....
menn (communicate), sbr. hinn frumstæða
mann. Þá staðreynd, að margir af gullaldar-
höfundum íslenzkra bókmennta hirtu ekki
um að feðra verk sín, myndi McLuhan
sennilega skýra á þann veg, að þeir hafi
haft annan skilning á einstaklingnum og
framlagi hans yfirleitt heldur en íslending-
ar tuttugustu aldar, sem virðist kannski
liggja í augum uppi.
í bók sinni „Að skilja miðla“ bendir Mc-
Luhan á, að fjölmiðlar okkar tíma, sem fá
orku sína frá rafmagni, svo sem símskeyti,
útvarp, sjónvarp og rafeindaheilar, séu í
þann veginn að gerbylta lífi okkar. En ekki
vegna breytts innihalds þeirra, eins og við
höldum oft, heldur séu áhrif þessara miðla á
skynfæri okkar annars eðlis en áhrif fyrri
tíma miðla. Þetta hafi þegar og muni halda
áfram að fæða af sér annan eða breyttan
homo sapiens. Fyrri tíma miðlar, svo sem
höggmyndin eða bókin, krefjist þátttöku að-
eins eins skynfæris okkar, sjónarinnar. Nú-
tímafjölmiðlar krefjist aukinnar þátttöku
okkar. Og þessi krafa sé að baki öllum
þjóðfélagslegum breytingum, sem við lifum
þessa stundina (McLuhan talar um, að í
upphafi tæknialdar hafi átt sér stað spreng-
ing út á við (explosion), en með tilkomu
rafknúinna miðla sé að eiga sér stað spreng-
ing inn á við (implosion). Og þessi spreng-
ing inn á við sé einkenni allra seinustu ára).
Til nánari skilgreiningar á eðli hinna
ýmsu miðla aðgreinir McLuhan þá í tvo
flokka: heita og svala miðla (hot and cool
media). Heitur miðill eða reynsla (erfitt er
að skilgreina orðið miðill hjá McLuhan;
þetta hugtak notar hann í mjög víðtækri
merkingu um allt sem miðlar upplýsingum;
fatnaður getur verið miðill eða falið í sér
ákveðið form samskipta) er mjög afmark-
aður og merkingarfullur miðill, t. d. kvik-
myndir, útvarp, bækur eða málverk. Svalur
miðill er fátækur að skilgreindum markmið-
um og upplýsingu og krefst þess að þátttak-
andinn bæti inn í. Slíkur miðill er sjón-
varpið, sem krefst viss ósjálfráðs hugræns
Framhald sérhvers skynsviðs breytir
hugsun okkar og athöfnum — breytir
skynjun okkar. Þegar skynjunarhlut-
föllin breytast, breytast mennirnir.
Rafkerfið er framhald mii
. ... er framhald augans.
samtengjandi starfs: til þess að skynja mynd
á skerminum verður áhorfandinn að tengja
hina mismunandi fosfórpunkta hans saman.
Þessi flokkun í heita og svala miðla á einnig
við um fólk. Heitir miðlar eru hentugir
miklum einstaklingshyggjumönnum, en sval-
ir miðlar, svo sem sjónvarpið, eru heppi-
legir fyrir fólk, sem hefur yfir framkomu
sinni vissan blæ kæruleysis. Þeir sem vin-
sælir vilja vera í sjónvarpi þurfa helzt að
vera eins venjulegir og unnt er (Ed Sullivan
t. d.), þannig að sem flestir geti tekið þátt
í persónu þeirra, án þess þurfa að taka of
mikið á til þess að breyta sér.
Meginviðfangsefni McLuhans er þjóðfé-
lagslegar breytingar. Þjóðfélagið umhverfis
okkur er í stöðugri breytingu, og við eigum
erfitt með að átta okkur á eðli þessara
breytinga. En til eru svokölluð frumstæð
þjóðfélög, sem ekki breytast á sama hátt og
hin þróuðu þjóðfélög. Hið frumstæða þjóð-
félag er í meira jafnvægi (og jafnframt í
meira jafnvægi að því er varðar líkamlega
skynjun). McLuhan tekur afstöðu með hin-
um rafmögnuðu fjölmiðlum, svo sem sjón-
varpinu, vegna þess að þeir koma á hjá
manninum með tímanum meira skynjafn-
vægi. Þjóðfélög hins iðnvæddari hluta
heimsins eru að breytast í heimsþorp (glo-
bal village), sbr. hippahreyfinguna. Og
styrjaldir eiga eftir að hverfa fyrir tilstilli
sjónvarpsins. Stríðið í Víetnam, sem er heitt
stríð, þar sem barizt er af „prinsípástæðum",
er dauðadæmt í svölum fjölmiðli eins og
sjónvarpinu. í þessu sambandi má benda á
mótmælagöngur og óeirðir gegn þessari
styrjöld í Víetnam, sem væru óhugsandi
væri sjónvarpið ekki komið til sögunnar.
Það má áreiðanlega deila á ýmsar vafa-
samar fullyrðingar McLuhans, en það ljós,
sem hann varpar á þokukennda nútíð okkar,
er vissulega ekki án þýðingar. Segja má að
McLuhan hafi endurholdgað goðsöguna með
því að hlutir taka að tala til okkar, sem
áður virtust án merkingar. Eða hver vill
ekki vera svalur á okkar dögum? 4
43