Samvinnan - 01.08.1970, Síða 45

Samvinnan - 01.08.1970, Síða 45
Ródesía fær aðfluttan varning sinn um báðar þessar hafnir, en stærsta iðnaðarsvæði Suður-Afríku, kringum Jóhannesarborg, á mikið undir annarri þeirra, semsé Lourenco Marques. Ekki eru neinar horfur á, að stjórnin í Lissabon hyggi á breytingar í nýlendumálum sínum. Eftirmaður Salazars, dr. Marcello Caetano, hefur opinberlega heitið að halda fast við stefnu fyrirrennarans að því er snertir varðveizlu „lögmætra og óvefengjanlegra réttinda" Portúgals í hinum svonefndu „héruðum handan hafsins“. Portúgal mun láta sér blæða til ólífis, ef nauðsyn krefur, til að halda virkinu, sagði í yfirlýsingunni. Þegar Caetano heimsótti nýlendurnar í Afríku í fyrravor (hann var fyrsti forsætisráðherra Portúgals sem nokkru sinni hafði heimsótt þær), ítrekaði hann þessar yfirlýsingar. „Portú- galar eru ein þjóð margra kynþátta,“ sagði hann. Það sem er í húfi er „sögulegt hlutverk Portúgals11, samkvæmt opinberum yfirlýsingum, en það er í því fólgið að rótfesta „vestræna menningu og fagnaðarerindi Krists“. Þegar Portúgalar unnu Ceuta í Norður-Afríku árið 1415, urðu þeir upphafsmenn nýlenduskeiðsins, sem leiddi til mikilla landvinninga Evrópuþjóða um víða veröld. Nú er svo komið, að smáríkið Portúgal er síðasta meiriháttar ný- lenduveldið — og ræður yfir lendum sem eru 23 sinnum stærri en heimalandið. Þessar nýlendur sjá Portúgal fyrir þriðjungi af útflutningstekjum sínum. Uppgötvun verulegra auðlinda í Angóla og Mózambik — fyrst og fremst olíu og járnmálms — mun gera þessar nýlendur ennþá verðmætari en áður. Portúgal ver nú 48,7% af útgjöldum á fjárlögum til hernaðarþarfa (og eru þá undanskildar hin víðtæka öryggislögregla og hin árvökula leynilögregla, PIDE). Meginhluti þessara útgjalda gengur til stríðsreksturs í Afríku. Ekkert annað ríki í Evrópu ver jafnstórum hundraðshluta til hernaðarþarfa, hvort sem miðað er við fjárlög eða þjóðarframleiðslu. Herskyldutíminn í Portúgal er fjögur ár — og er hann mun lengri en í nokkru öðru NATO-ríki. Þegar dr. David Livingstone fór hinn sögulega leiðangur yfir meginlandið frá Angóla til Mózambik fyrir rúmum hundrað árum, fann hann einungis „ömurleg [portúgölsk] virki full af herföngum vopnuðum herlúðrum og eirbumbum". Ástandið er allt annað nú: öflug virki og velþjálfaðir hermenn búnir nýtízkulegustu vopnum. Portúgalar hafa komið sér upp svo fjölmennum herafla í nýlendum sínum, að einungis eitt ríki í Afríku ræður yfir öflugri her, semsé Egyptar. Frá sjónarmiði nýlendustjórnmála er erfitt að trúa því, að hægt sé að halda þessum nýlendum nema með því að grípa stöðugt til kúgunar og ofbeldisaðgerða. í hinum tveimur stóru nýlendum búa 12,4 milljónir Aíríkumanna, en aðeins 300.000 hvítir menn. Sú stað- hæfing stjórnarinnar í Lissabon, sem sífellt er tönnlazt á, að meðal Portúgala sé ekki að finna neina kynþáttafordóma, er rækilega af- sönnuð af þeim aðstæðum sem nú eru ríkjandi í nýlendunum, og ósennilegt er að ástandið batni, jafnvel þótt linað verði á harð- stjórninni. Það er sömuleiðis goðsögn, að portúgalskir íbúar nýlendnanna gift- ist gjarna Afríkumönnum. Portúgalskir karlmenn hafa kannski ekkert á móti því að eiga kynmök við þeldökkar konur, en þetta er alþekkt fyrirbæri — í Suðurríkjum Bandaríkjanna til dæmis, og í Suður- Afríku. Að því er virðist eina skýrslan sem nokkurn tíma hefur verið samin í nýlendunum um blönduð hjónabönd (fyrir árið 1950 og landfræðilega ófullkomin) hefur að geyma eftirfarandi upplýs ingar: Þeldökkar konur giftar hvíturn mönnum: 0 Þeldökkir karlmenn kvæntir hvítum konum: 0 Hinir ýmsu stjórnarandstöðuhópar í Portúgal hafa allir lýst yfir því, að þeir vilji, að nýlendunum verði veitt sjálfstæði. Ef þessi ósk á eftir að rætast, er ekki erfitt að sjá fyrir sér nýja hliðstæðu við það sem gerðist í Ródesíu: valdatöku portúgölsku minnihlutanna í nýlendunum og áframhaldandi kúgun innfæddra. Bæði Suður-Afríka og Ródesía mundu að öllum líkindum veita þá hernaðaraðstoð, sem talin væri nauðsynleg. Lítill vafi er á því, að portúgölsku innflytjendurnir mundu geta efnt til OAS-herferðar í svipuðum stíl og efnt var til í Alsír fyrir nokkrum árum. í því sambandi er nægilegt að hafa í huga seigluna og grimmdina sem birtist í viðleitni þeirra við að verja aðstöðu sína við ríkjandi aðstæður. Á öllum þeim svæðum, sem ógnað er, hefur verið komið upp svonefndum „landvarnasveitum sjálfboðaliða", skipuðum Portúgölum. í hinni stóru héraðsborg Silva Porto, í hjarta Minnisvarði um fallna portúgalska hermenn í jyrri heimsstyrjöld í Ltíanda í Angóla. Angóla, má til dæmis sjá raunverulegar hersýningar, þar sem „sjálf- boðaliðarnir“ aka um borgina í bílalestum með 30 til 40 Landrover- jeppum, og á hverjum jeppa sitja 4 til 6 menn vopnaðir rifflum og sjálfvirkum vopnum. Þessar sveitir hafa einnig til umráða þyrlur og litlar flugvélar. í Lúanda, höfuðborg Angóla, las ég leiðara í dagblaði, þar sem því var haldið fram, að tími væri kominn til að gera „eitthvað raun- hæft“, og að hingað til hefði verið farið „alltof mildilega" með inn- fædda menn. Eftir því sem hernaðarátökin í portúgölsku nýlendunum magnast, fjölgar flóttamönnum. í Angóla hefur meira en helmingur innfæddra ibúa hinna auðugu norðurhéraða þegar flúið til Kongó-Kinshasa. Forstjóri flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Kinshasa, Svisslendingurinn dr. Otto Hagenbiichle, tjáði mér, að samkvæmt opinberu mati Sameinuðu þjóðanna væru flóttamenn frá Angóla í Kongó nú um 400.000 talsins — en hann tók fram, að þetta væri varkárt mat og sennilega væru flóttamennirnir nálægt 600.000 talsins. Hann vísaði á bug þeirri ítrekuðu staðhæfingu Portúgala, að margir fióttamannanna hefðu snúið aftur til Angóla. Hann kvaðst álíta, að þeir mundu ekki kæra sig um að snúa heim til átthaganna fyrr en nýlendan hefði hlotið fullt sjálfstæði. í síðustu meiriháttar ræðu sinni til portúgölsku þjóðarinnar stað- festi Salazar áframhaldandi stuðning stjórnar sinnar við baráttuna gegn „hermdarverkamönnunum“ (hinum innlendu þjóðfrelsishreyf- ingum). Jafnframt sendi hann vestrænum ríkjum harðorða áminn- ingu vegna hálfvolgrar afstöðu þeirra til vandamála Portúgals. „Heimurinn tekur á sig mikla áhættu, ef hann leyfir þeirri sann- færingu að festa rætur, að ógnaraðgerðir skæruliða verði ekki brotnar á bak aftur,“ sagði hann. Hernaðarátökin í portúgölsku nýlendunum eru nú orðin svo víð- tæk, að uppgjafarstefnan er kannski þegar allt kemur til alls eina raunsæja afstaðan. 4 45

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.