Samvinnan - 01.04.1972, Síða 60
HEIMIUS&
§
3
Steinþórsdóttir
Bryndís
'S snmi3H
GERKÖKUR („Pizza")
DEIG:
175 g (3 dl) hveiti
IVí dl vatn (volgt)
15 g pressuger eða lVs tsk þurrger
1 msk matarolía eða olívuolía
Vi tsk salt.
Hrærið gerið með helmingnum af volga vatninu. Bætið því sem eftir
er saman við ásamt matarolíunni, hveitinu og saltinu. Hnoðið deigið
sem á að vera lint, þar til það er gljáandi og sprungulaust. Fletjið það
síðan út á plötunni í kringlótta köku. Látið fyllinguna jafnt yfir en þó
ekki alveg út á barmana. Penslið yfir með mataroliu og kryddið. Brjótið
barmana upp ef þarf, t. d. ef um kjötfyllingu er að ræða. Látið kökuna
lyfta sér við yl um 20 mín. og síðan bakað við um 200 gráðu hita í
20—30 mín. Bezt nýbökuð, með öli, tei eða rauðvíni.
FYLLING I.
Kryddsíld, ansjósur eða sardínur
10 olívur eða saxaður laukur
4 tómatar og 2 msk tómatsósa
% tsk paprika, timjan, salvie eöa basilikum
rifinn ostur
FYLLING II.
Hangikjöt, smátt saxað eða í sneiðum
Vi—% dós grœnn aspas
Vt tsk salt
rifinn ostur
FYLLING III.
KJÖTSÓSA:
3 msk matarolía eða smjörlíki
1—2 laukar
200 g hakkað nauta- eða lambakjöt
1 dl tómatsósa
Vi—1 dl vatn
1 msk hveiti
salt, pipar, paprika, timian
Saxið laukinn og brúnið hann ásamt kjötinu í feitinni. Stráið hveitinu
yfir og hrærið tómatsósu og vatni saman við. Kryddið og látið sjóða í
5—10 mín. Kælið. Látið sósuna jafnt yfir kökuna, brjótið barmana
upp og stráið rifnum osti yfir. Penslið með matarolíu og bakið eins og
áður er tekið fram. Hrátt grænmetissalat er gott hér með.
Rækju- og sveppajafningur er einnig góð fylling en þá er betra að
hálfbaka kökuna áður en jafningnum er hellt yfir.
Stráið rifnum osti ofan á og fullbakið kökuna.
Eggjakaka með fleski, kartöflum og osti
4 egg
8 msk vatn eða mjólk
% tsk salt, pipar
100 g reykt flesk (bacon)
4—5 soðnar kartöflur
1 laukur eða graslaukur
100 g ostur
Þeytið egg, vatn eða mjólk og krydd saman. Skerið fleskið í litla bita
og steikið á þurri pönnu ásamt söxuðum lauknum. Bætið smjörlíki á
pönnuna ef þarf, hellið eggjahrærunni á og bakið við hægan hita.
Pikkið kökuna með gaffli og stráið fleski, lauk, kartöflum og ostbitum
yfir þegar kakan er hálfbökuð. Ef notaður er graslaukur er hann
klipptur yfir. Þegar kakan er bökuð er hún brotin tvöföld eða rennt
yfir á hlemm, pönnunni hvolft yfir og kökunni snúið við og bökuð
áfram í 1—2 mín., borin fram með rúgbrauði. í staðinn fyrir flesk er
gott að nota kjöt-, fisk- eða grænmetisafganga frá miðdegisverðinum.
Eggjakaka með reyktri síld og radísum
4 egg
4 msk vatn
1 tsk salt, pipar
dill, steinselja eða graslaukur
1 búnt radisur
3—4 msk smjör eða smjörlíki
2—3 flök reykt síld
Fjarlægið roðið af síldinni og skerið hana í bita. Hreinsið radísurnar
og skerið í sneiðar. Hrærið egg, vatn og krydd saman. Bræðið smjörið
60