Samvinnan - 01.04.1972, Page 62
Gottjried Keller (1819—
1890), hið ágæta og ástsæla
svissneska skáld, varð brátt
náinn vinur málarans fræga,
Amolds Böcklins, eftir að sá
síðarnefndi hafði setzt að í
Ziirich 1885. Þegar Böoklin
hafði lokið við hið kunna mál-
verk sitt „Spiel der Wellen“
og eftirmynd þess hafði verið
stillt út í glugga í einni bóka-
búð borgarinnar, urðu bæði
lögreglan og almenningur mið-
ur sín af hneykslun yfir nokkr-
um strípuðum hafmeyjum í
bakgrunni myndarinnar.
Menn biðu þess eftirvænt-
ingarfullir við krárborð þeirra
Böcklins og Kellers, hvað hinn
mikli höfundur segði um
hneykslið. Keller sneri sér al-
varlegur í bragði til Böcklins
og sagði:
— Já, þetta er skrambans
góð mynd! Og þessar berstríp-
uðu stelpur, sem hneyksla al-
menning! Að vísu verður mað-
ur að hafa gerspillt ímyndun-
arafl til að sjá nokkuð ljótt í
þessu, en — guði sé lof — það
hef ég!
Alexander Kielland (1849—
1906), norski skáldsagnahöf-
undurinn, hafði um langt skeið
ekki haft stundlegan frið fyrir
ungu skáldefni, sem endilega
vildi fá hann til að lesa eftir
sig handrit að ljóðabók. Að
lokum lét Kielland undan, og
þegar hann hafði lesið hand-
ritið, sagði hann við unga
skáldið:
— Vitið þér eitt ungi maður,
þessi ljóð mundu án efa vekja
áhuga Henriks Ibsens ....
— Haldið þér það virkilega?
spurði ungi maðurinn hrifinn
— en ég hélt nú annars að
Ibsen væri þeirrar skoðunar,
að tími ljóðsins væri liðinn.
— Já, samsinnti Kielland,
og ljóð yðar eiga eftir að
styrkja hann í þeirri sannfær-
ingu, að hann hafi rétt fyrir
sér.
Laó-tse (604—507), kín-
verski heimspekingurinn og
trúarbragðahöfundurinn, var á
sama hátt og Konfúsíus mjög
virtur af samtíðarmönnum
fyrir vísdóm sinn. Þegar hann
var kominn á gamalsaldur, af-
réð hann að draga sig í hlé frá
veraldarvafstrinu og lifa eftir
kenningum sínum í einrúmi.
Hann lagði land undir fót, en
þegar liann kom að landamær-
unum var hann stöðvaður af
fylkisstjóra landamærafylkis-
ins. sem sagði við hann:
— Ég hef heyrt, vitri Laó-tse,
að þú hafir afráðið að grafa
þig niður í einveruna. Nú bið
ég þig, áður en þú hverfur á
brott, að færa okkur bók sem
hefur að geyma boðskap þinn,
svo við getum rifjað upp vís-
dóm þinn.
Laó-tse varð við ósk hans
og samdi hið fræga rit „Taó-
te-king“ (Bókin um veginn),
en hélt síðan áfram för sinni,
og hefur ekkert til hans spurzt
síðan. Vísdómsbókin litla varð
svo helgirit þeirra kínversku
trúarbragða sem nefnd eru
taóismi.
Hagræðing
og
hraði
Eimskipafélag Islands vinnur sífellt að
uppbyggingu skipastólsins með hliðsjón
af nýjustu vöruflutningatækni. Hagræð-
ing og hraði við lestun og losun skip-
anna stuðlar að meiri og betri þjónustu
við viðskiptamennina.
Hraðferðir „fossanna“ til og frá Evrópu-
höfnum, og tíðar ferðir til Bandaríkj-
anna með flutning á vörupöllum eða í
vörugeymum, stuðla að auknum eininga-
flutningum og betri þjónustu að hálfu
félagsins.
H.F. EIMSKIPAFELAG ÍSLANDS
62