Samvinnan - 01.04.1972, Side 66
einustu persónu í ást sinni,
hlýtur því að dæmast nirfill,
sem stöðvar peningaveltuna í
viðskiptaheiminum. Hann ligg-
ur á fjársjóði, sem kemur hon-
um sjálfum ekki að gagni, en
gæti orðið öðrum að góðum
notum.“
í hárri elli varð Ninon fyrir
ástleitni prests sem var enn
ungur að árum. Hún vísaði
ástarjátningum hans á bug, en
lét jafnframt í það skína, að
honum kynni að vegna betur
við hana að ári liðnu. Eftir ná-
kvæmlega eitt ár kom ungi
presturinn aftur og fékk nú
allar sínar óskir uppfylltar,
bæði stórar og smáar. Hann
var ofsakátur af hamingju. —
En, sagði hann við ástkonu
sína, — hversvegna varð ég að
bíða svo lengi?
— Æ, kæri prestur, svaraði
Ninon, — það var nú ekki
annað en bláber hégómi. Mig
langaði til að bíða þartil ég
næði áttræðisaldri — og það
gerði ég í nótt.
Leo'pold I (1640—1705),
þýzk-rómverskur keisari frá
1658, var gæddur miklum tón-
listargáfum og lék sérstaklega
vel á flautu.
— Það er skaði, að yðar há-
tign varð ekki tónlistarmaður,
sagði hljómsveitarstjórinn við
hirðina eitt sinn.
— Ætli ég standi mig nú
samt ekki betur í því sem ég
hef orðið? svaraði Leopold.
Leopold II (1835—1909),
konungur Belgíu frá 1865, átti
tvífara þar sem var borgar-
stjórinn í Briissel, og voru þeir
ótrúlega líkir.
Eitt sinn var Leopold stadd-
ur fyrir utan revíuleikhús og
sá þá skopmynd, sem sýndi
hann ásamt hinni frægu dans-
mey Cléo de Mérode. Kon-
ungur sneri sér að herforingj-
anum sem var í fylgd með
honum og sagði:
— Það er ekki sérlega þægi-
legt fyrir okkar ágæta borgar-
stjóra að láta stilla sér út með
þessum hætti.
Kaupmenn — Kaupfélög
MUNIÐ
NIÐURSUÐUVÖRUR
Merkið tryggir gæðin.
Aðeins valið hráefni.
ORA-vörur í hverri búð.
ORA-vörur á hvert borð.
NIÐURSUÐUVERSKSMIÐJAN ORA H.F.
Kársnesbraut 86 — Símar 41995 og 41996.
RÚSSNESKAR
Dráttarvélar
GERÐ T-40 SUPER
verða til afgreiðslu í maí.
50 ha vél.
Verð aðeins kr. 234.536,oo
ÓDÝRASTA DRÁTTARVÉLIN Á MARKAÐNUM
en um leið með öllum fullkomnasta búnaði,
varahlutum og verkfærum.
T-40 SUPER
í TÍMA
BJÖRN & HALLDÓR
SÍÐUMÚLA 19 — REYKJAVÍK — SÍMAR 36930 - 36030.
66