Andvari - 01.01.2002, Blaðsíða 61
ANDVARI
EINAR OLGEIRSSON
59
yfir. Brynjólfur hafði farið til Moskvu til venjubundins samráðs vegna
undirbúnings að 4. þingi KFÍ, sem halda átti þá um haustið. Eins og allt
yar í pottinn búið, hlaut fyrirhuguð sameining að vera mjög á dagskrá
1 þeim viðræðum. Er skemmst frá því að segja, að forysta Kominterns
taldi sameininguna mjög fýsilegan kost og hvatti íslenska flokkinn til
að sýna mikinn sveigjanleika í viðræðunum.8)
Um mánaðamótin október-nóvember kom aukaþing ASI saman. Þar
v°ru sameiningarmenn í meirihluta. Héðinn Valdimarsson lagði fyrir
þingið frumvarp til stefnuskrár fyrir sameinaðan sósíalistaflokk, og
'ýstu kommúnistar yfir því, að þeir væru fúsir til að ganga að þessari
stefnuskrá sem sameiningargrundvelli. Virtist nú kominn rífandi
§angur í sameiningarferlið. Þá gerðist það, að tiltölulega lítill hópur
torystumanna Alþýðuflokksins, þar á meðal allir þingmenn flokksins
nema Héðinn, gáfu út yfirlýsingu þess efnis, að þeir myndu aldrei sam-
Þykkja sameiningu á þeim grunni, sem fyrir lægi. Frammi fyrir þessari
hfttu á klofningi flokksins létu Héðinn og stuðningsmenn hans undan
Sl§a, og lokaályktun þingsins um málið hafði að geyma atriði, sem fyr-
lrfram var ljóst, að kommúnistar töldu óaðgengileg. Lutu þau ekki síst
að skipulagsþáttum. Virtist málið nú í bili hafa borið upp á sker. Á
aasstu mánuðum urðu síðan miklar sviptingar innan Alþýðuflokksins
°§ lauk þeim svo, að hinn 9. febrúar 1938 var Héðni vikið úr flokknum
°§ hinn 21. febrúar var Jafnaðarmannafélag Reykjavíkur, þar sem
Uéðinn var í öruggum meirihluta, rekið úr flokknum í heild sinni.
Sameiningarmenn Alþýðuflokksins lögðu þó ekki árar í bát, og sum-
anð 1938 komst fullur skriður á sameiningarviðræður KFÍ og vinstri
o^anna Alþýðuflokksins. Til grundvallar sameiningunni lágu tillögur
Utlnaðarmannafélags Reykjavíkur um stefnuskrá og fleira. Lokafrá-
§angur stefnuskrárinnar mæddi einkum á þeim Brynjólfi Bjarnasyni
^§ Héðni Valdimarssyni. Stefnuskráin kvað á um, að flokkurinn
hy§gði starf sitt og stefnu á grundvelli marxismans, og markmið hans
Væri að umbreyta þjóðfélaginu til sósíalisma. Skipulag flokksins
hy§gðist í grundvallaratriðum á lýðræðislegu miðstjórnarvaldi. Flokk-
Ullnn tók líka í arf frá KFÍ ýmislegt úr starfsháttum hans svo sem
Sehur, lið flokksmanna í verkalýðsfélögum og fræðslustarf í formi les-
hringa.
. f*egar þess er gætt, að sameiningarferlið og stofnun Sósíalistaflokks-
‘ns har upp á tímabil Moskvuréttarhaldanna 1936-1938, vekur nokkra
U|ðu, að þau ósköp öll skuli ekki hafa haft meiri áhrif til að spilla fyrir