Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1945, Side 30

Andvari - 01.01.1945, Side 30
ANÐVARt Lýðveldishugvekja um íslenzkt mál, íi'lluð til kvöldlestra til varnar gegn óhollustu af blaðalestri að morgni, helguð minningu islenzkra ritstjóra fyrir heimsstyrjöldina fyrri, tekin saman að mestu milii hvítasunnu og Jónsmessu árið 1944. Hægt og givtilega. Ég heilsa þér, landið mitt, hájöklnm krýnt! Ég heilsa þér, þjóð mín! með erindi brýnt. — Vor ævi’ er svo skammvinn til ævistarfsins, að efla þig, varðveita gimsteina arfsins: þin einkenni’ og mál þitt, — sem aldrei varð týnt. Kveðja Skírnis (Einar Benediktsson). Auðsagt er það, sem alsagt er, en ekki leikur á tveim tung- um, heldur er á hvers manns vörum, að mannkynið og þjóðir þess og einstaklingar þeirra lifi nú á tímamótum. Auðsagt er vitanlega einnig, þótt það sé tæplega jafn-auðsætt, að fyrir flesta einstaklinga og margar þjóðir og þá liklega ekki hvað sízt oss íslendinga eru þessi tímamót örlágastund. Á örlagastund her málefni þannig að mönnum og þjóðum, að ekki er nema um tvennt að velja, en eftir því, hvort af tvennu valið er, fer stefnan í lífi og tilveru þess, sem völina á, um alla framtið. Þetta tvennt, sem um er að velja á örlagastund, er jafnaðar- lega annaðhvort að ákveða sjálfur, hvað verða skal, og stefna að því og starfa að því eða að hrekjast ósjálfrátt eins og fót- knöttur alla vega fyrir spörkum aðvífandi áhrifa og velta að Jokum útþvældur einhvers staðar út af knattspyrnuvelli ófyrir- séðra tilviljana. Vér íslendingar erum nú svo staddir eigi aðeins á jarðar- hnettinum, heldur og í tilverunni, að á hverri stundu getur verið um það að tefla, hvort vér cigum að teljast til vestur- helmings jarðarinnar eða austurhlutans og það eigi að eins í

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.