Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1945, Page 31

Andvari - 01.01.1945, Page 31
ANDVAH! Lýðveldishugvekja um íslenzkt mál 27 landfræðilegum, heldur og í stjórnmálalegum efnum og menn- ingarlegum, og meira að segja getur einnig svo farið, að vér verðum að segja til þegar í stað svo að segja, hvað vér ætlum af oss að gera svo sem menningarþjóð. Vér þurfum sannarlega að athuga ráð vort nú. Með hverjum degi, sem líður, semjum vér íslendingar oss æ meira að siðum annarra þjóða vitandi eða óvitandi, vilj- ugir eða óviljugir eftir ýmislegum aðstæðum og viðhorfi um stjórnarfar, í atvinnuháttum, menningu, siðuin og klæðahurði og annarri mannlegri háttsemi í mörgum greinum. Saintímis mást af oss æ fleiri og fleiri séreinkenni þjóðarinnar, sem áður har mjög á, og munar þegar miklu frá því, er fyrrum var. Nú er svo komið, að það er varla annað en roskna fólkið í hyggðum og bæjum, sem enn þá her íslendinginn utan á sér, svo að ekki verði um villzt, í fasi, háttalagi og búningi. Unga fólkið, stúllcurnar (sem í óvandlegu tali sínu kalla sig og hver aðra stelpur, þótt þær séu það væntanlega mjög fáar, sem betur fer, ef til alvörunnar kemur) og piltarnir (er á sams konar máli kallast strákar, þótt fæstir þeirra séu það í i'aun og veru), hvort sem það á heima í hyggðunum kring um Reykjanes við Faxaflóa eða uinhverfis Langanes við Þistil- fjörð, er yfirleitt ekki lengur að hátterni eða hugsjónum veru- lega frábrugðið kynsystkinum sínum umhverfis Florida-skag- ann í Bandaríkj um NorÓur-Ameríku eða á landsvæðunum norðan baðstrandanna við Miðjarðarhafið, heldur því nær eingöngu að móðurmáli. Meira að segja er sveitafólk i Signu- hyggðum og lausungarlýðurinn, er reikar um miðdik hinnar glæstu höfuðborgar Frakldands á friðartímum, sjálfsagt milclu ólíkara sín á milli bæði um háttsemi og' búnað. Börnin, sem of oft eru kölluð krakkar, eru þegar farin að liegða sér svo mörg hver, að sjálfsagt á margt af hinu roskn- ara fólki erfitt með að átta sig á því, að þau séu af íslenzku hergi brotin, ekki sízt, er við bætist, að búningur þeirra hrærir ekki lengur í neinu við minningum um nokkuð, sem íslenzkt er, og þau eru jafnvel í ofanálag farin að sletta amerísku: ..O, Iv.!“ „Sorry!“

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.