Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1945, Side 34

Andvari - 01.01.1945, Side 34
30 Meistari H. H. ANDVARt Á því, hvorri þessara spurninga vér svörum játandi, veltur tilvera vor sem þjóðar og tilveruréttur í framtíðinni. Tildrögin að því ástandi, sem vér þá lifum við, fara eftir því, hvort vér tökum nú rögg á oss og setjum oss hreinlegt markmið að keppa að, eða vér fljótum sofandi að feigðarósi upp á þau hýti að verða á endanum, ef nokkur verður, eitthvert veraldar- innar viðundur, sem enginn þekkir haus né sporð á. Því er ráðlegast að greiða svarið þegar í stað og ótvírætt. Svarið veltur mjög á því, hvað vér skiljum við það að vera íslendingar. Að vísu er fijótsagt, að það er vissulega ekki það eitt að ganga í Álafossfötum; það gætum vér áreiðanlega eins vel, þótt vér værum til dæmis írlendingar eða Svisslendingar. Það er meira að segja ekki heldur það að byggja ísland nú; það gætum vér ef til vill fullt eins vel eða enn betur, ef vér værum eittlivað annað en Islendingar. Vér erum Islendingar af því, að vér erum afkomendur þeirra manna, er námu ís- land, og höfum byggt það í meira en þúsund ár, og að svo miklu leyti, sem vér geymum þau einkenni, sem lífsbarátta forfeðra vorra hefur markað oss, beruiu þann svip, sem lnin hefur gefið oss, og tölum það mál, er forfeður vorir fluttu hingað með sér og hafa varðveitt hér frá upphafi íslands- byggðar. Til þess að geta svarað örlagaspurningum vorum af alvöru verðum vér að ganga úr skugga um, að vér séum sömu skoðunar og mesti alheimsborgari, er verið hefur uppi meðal vor, var í upphafi þessarar aldar, að ævistarf vort sé að efla þjóð vora með því að „varðveita gimsteina arl'sins“, einkenni hennar og mál, og meta, hvort vér álítum oss nokk- urn ávinning að því að eyða aldri vorum í þessu skyni. Auðsætt er flestum, þvi að það liggur ínjög í augum uppi, að það er val'alaust miklu hagkvæmara að vera eitthvað annað en íslendingur, Breti eða Bandaríkjamaður til dæmis, ef vér setjum oss það markmið tilveru vorrar sem þjóðar æðst að taka ávísanir á verðmæti lífsins, peningana, fram yfir þau sjálf, svo sem ýmsum virðist raunar þykja sjálfsagðast nú. Sama gildir um það, sem öðrum kann að þykja sjálfsagt, að sækjast fremur eftir efnalegri velmegun en andlegum þroska.

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.