Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1945, Page 41

Andvari - 01.01.1945, Page 41
ANDVARS Lýðveldishugvekja um islenzkt mál 37 ólærður, hefur ekki í máli sínu orð, er „af annárri tungu eru gefin“, svo að höfð séu orð Snorra, grípur aldrei til grískra eða latneskra eða frakkneskra eða enskra eða danskra orð- stofna til þess að gefa hlutum eða hugtökum nafn, einfaldlega vegna þess, að hann hefur, sem betur fer, eklci tölc á þeim, kann ekki slík orð, sem ekki er von og honum ekki til neinnar minnkunar. Knýjandi nauðsyn þess að koma orðum að hugs- un sinni vísar honum á orðaforða móðurmálsins og kallar rétta orðið fram, dregur það ef til vill út úr þyrpingu hálf- gleymdra fornyrða og fær því nýja merkingu, eða hann minn- ist nothæfs orðs úr innlendu hversdagsmáli sínu eða annarra og hefur það, stundum með breyttri eða nýrri merkingu, eða honum sprettur upp af ungu frjói nýrrar hugsunar nýtt orð af islenzkum stofni við aðhlynningu heilbrigðrar skynsemi og yl tilfinningarinnar fyrir samræmi, fegurð og hreinleika móð- ormálsins. Loks gerist liið merkilegasta: Orðin sjálf kalla hvert á annað, leita hvert annars til liðs við sig sakir skvld- leikans. Þessu lýsir Óðinn i Hávamálum: „Orð mér af orði orðs leitaði." hetta verður eins og af sjálfu sér, því að mál alþýðumanns c‘r lifandi; hann talar lifandi mál og verður því tæplega var örðugleika við orðavalið. Lærður maður eða sá, er numið hefur erlend mál að meira eða minna — venjulega minna -— leyti, en vanrækt nám móðurmálsins, er hins vegar í sífelldum 'andræðum og verður að lokum að forherða sig til að halda h'i fram, að útlend orð, sem hann slettir, séu hetri en ís- lenzk, sem hann hefur vanið af tungu sér, þótt merking slettn- ‘,una sé að jafnaði hæði reikul og óljós og auk þess meir eða ouður gögur og hann skilji þær sjálfur getur verið ekki hetur eu maðurinn, sem vildi hæla hreppstjóra sínum með því að halla hann „delinkvent". Eins og alþýðumenn þeir, sem hezt eru máli farnir, tala nta líka þeir lærðir menn íslenzkt mál, sem kunna það og a a ekki kært sig um að týna því að einhverju meira eða

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.