Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1945, Page 65

Andvari - 01.01.1945, Page 65
ANDVARl Lýðveldishugvekja um islenzkt mál 61 þróun íslenzkunnar,“ eins og Einar Benediktsson komst eitt sinn að orði á sumarnótt i samtali ó Spítalastígnum. Vér eig- um að hlynna að myndun nýrra og fagurra orða úr efniviði orðaforðans í stað aulalegra og' sóðalegra umrenningsorða, sem eiga að dæmast til gleymsku. Hvert nýtt orð, sem vér myndum réttilega eftir eðli málsins, er nýsmíði „í orðsins list“, nýtt listaverk, nýtt andlegt verðmæti, -— vextir arfleifð- ar vorrar. Vér megum þó engu tapa af sjálfum höfuðstóli hennar, ekki láta fara í glatkistuna orð, sem fyrir eru í málinu um hugmyndir, sem oss finnst að vér komum ekki orðum að í svip, af því að farið er að fyrnast yfir þau, heldur þrífa þau upp, þurrka al' þeim móðu fyrnskunnar, fága þau af nýju, er farin eru að mást, og rifja þau upp, sem eru að traðkast nið- ur í þvargi hversdagslífsins. Vér íslendingar þykjumst sjálfsagt hafa töluverða ástæðu til þess að vera nokkuð borginmannlegir um þessar mundir, svo sem af velgengni vorri í fjármunalegum efnum, en vér getum þó ekki án minnkunar leyft oss hvað sem er. Til er það, ei' vér höfum ekki ráð á. Vér getum ekki vansalaust látið það eftir okkur liggja að gleyma nú óðum „máli, sem hefur mátt að þola meinin flest, er skyn má greina: is og hungur, eld og kulda, áþján, nauðir, svartadauða“, þar með að láta það ásannast, að „a..sk... vehnegunin“ liafi þó unnið bug á því, sem allar plágurnar fengu ekki fargað. Við slíku eiga raunar að hafa verið reistar skorður. Vér eigum að hafa á að skipa allmiklu liði, sem á að vera valið og vel þjálfað til varnar gegn óvinuin tungunnar, er dyljast í launsátrum hirðuleysis og gleymni. Þetta lið eru menntamenn vorir. Menntir allar eru órjúfanlégum tengslum hundnar við orð °g mál. Án orða engar menntir. Þessi sannreynd leg'gur öllum þeim, er ástunda menntir, aðalsmannlega skyldu á herðar.

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.