Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1945, Page 70

Andvari - 01.01.1945, Page 70
66 Þorkell Jóliannesson ANDVARf ur Skaftárgljúfur og breiddi úr sér um Meðalland og Landbrot. Eldgjárhraun hin fornu eru talin ná yfir 12—13 ferhyrnings- mílur, og telur Þorvaldur Thoroddsen líldegt, að þau liafi runnið í einu, stórkostlegu gosi.1) Mér þykir trúlegt, að ná- kvæmar rannsóknir jarðfræðinga um slóðir þessar muni leiða sitthvað í ljós um Eldgjá og Eldgjárhraun, sem Þorvaldi Thor- oddsen gafst ekki kostur á að athuga við fljótlega rannsókn fyrir rúmum 50 árum síðan. Mætti þá vera, að fræðimönnum tækist með stuðningi slíkra rannsókna að bregða nýrri og gleggri skímu yfir óljósar og lítt skiljanlegar frásagnir Land- námabókar um hina fyrstu byggð á þessum slóðum og af- drif hennar. En það er víst, að hér hafa allmiklar breytingar orðið á landinu síðan byggðin hófst og svo á byggðinni sjálfri. Um Skaftárgíga gegnir svipuðu máli. Víst er um það, að hér hafa eldsumbrot orðið á fyrri öldum, en eigi ganga af því neinar sögur, sem með vissu verði tengdar við eldstöðvar þessar. Saga þeirra, sú er við þekkjum, er stutt. Hún gerðist fyrir rúmum 160 árum, og kalla má, að um hana höfum við óvenjulega góðar og glöggar heimildir frá hendi manna, er sjálfir fylgdust með tíðindum og kynntu sér rækilega verks- mnmerki, er orðin voru. Er þar fyrst að nefna rit Jóns prófasts Steingrímssonar, og því næst lýsingu Magnúsar Stephensens um Skaftárelda. Heimildir þessar, einkum rit Jóns Steingríms- sonar, eru svo vel kunnar þorra manna, að óþarl'i er að gera nánari grein fyrir þeim. Aðrar l'rásagnir um eldana sjálfa haí'a yfirleitt lítið gildi. Um tíðindi þau, er fylgdu í kjölfar Skaftárelda, móðuliarð- indin, og afleiðingar þeirra, er heimildum nokkuð á annan vcg farið. Að vísu er mikinn fróðleik að finna um þessi efni í rit- um þeirra Jóns Steingrímssonar og Magnúsar Stephensens, sem fyrr gelur, einkum að því er snertir eldsveitirnar sjálfar og hin nálægari héruð. En annars eru heimildir dreifðar og erfitt að fá fullt yfirlit um þær, og auk þess eru þær vand- metnar, sumar. Þannig eru t. d. hagskýrslur frá þessum tíma 1) I>. Th.: Lýs. ísl. II., bls. 150—155.

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.