Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1945, Page 71

Andvari - 01.01.1945, Page 71
ANDVARl Við Skaftárelda 67 varhugaverðar, og veldur þar mestu, að gögnin, sem þær eru samdar eftir, voru í upphafi glompótt, og yfir þær glompur er svo brúað með nokkurs konar líkindareikningi. Verða menn að hal'a þetta í huga, er um er að ræða skýrslur um tjónið af Skaftáreldum og móðuharðindunum, en þær er að finna í riti Magnúsar Stephensens uin Skaftárelda, Islandslýsingu C. U. D. Eggers, ritgerð Hannesar Finnssonar um hallæri og Eftir- mælum 18. aldar, eftir Magnús Stephensen. Þess er þó trauð- lega að vænta, að tölur þessar og skýrslur verði endurbættar eftir frumgögnum, þótt til næðist, enda verður ekki gerð nein tiíraun til þess hér. En ég vil aðeins benda á það, að þótt tala kvikfénaðar, sem féll í harðindunum, sé ekki rengd, þá er ástæða lil þess að trúa varlega meira eða minna áætlaðri tölu kvikfjárins fyrir harðindin og þar af leiðandi öllum útreikn- ingi, sem byggður er á þessu. Skal að því vikið siðar. II. Saga Skaftáreldanna sjálfra er í stuttu máli á þessa leið: 1. júní 1783 urðu menn í Vestur-Skaftafellssýslu varir við allsnarpa landskjálftakippi, og varð þeirra jarðhræringa vart óðru hverju næstu daga. Að morgni 8. júní kom í ljós gos- mökkur mikill yfir Síðufjöllum, og brátt tók hið mikla jökul- iljót, Skaftá, að þverra og þornaði loks upp með öllu, að öðru en vötnum, er í liana runnu í byggð. 12. júní brauzt hraun- straumur mikill fram úr Skaftárgljúfri og breiddi úr sér milli Skaftártungu og Skálarfjalls á Síðu. Ágangur elds og vatns fók nú að kreppa að byggðinni, og næstu daga eyddust nokkrir bæir. 29. júní kom nýtt eldflóð fram úr Skaftárgljúfri og ÍÚ'eindist í þrjár meginkvíslir. Rann hin vestasta niður far- veg Landár, niður í Kúðafljót, og staðnæmdist fyrir ofan Leiðvöll. Miðkvíslin stefndi á Landbrotið, en liin þriðja rann austur með Síðunni og stöðvaðist loks 20. júlí hjá Systra- stapa og þótti með ólíkindum (Eldmessa). 30. júlí kom hraunflóð mikið niður farveg Hverfisfljóts, austan við Síðuna, og uggðu menn um hríð, að byggðin myndi verða umkringd af eldi, en eigi fór svo. — Eldgosin héldust

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.