Andvari - 01.01.1945, Blaðsíða 72
68
Þorkell Jóhannesson
ANDVARI
fram á haust og reyndar nokkru lengur, jafnvel fram í febr-
úar 17841). Má þó kalla, að megingosinu létti undir lok októ-
hermánaðar. En fram til þess tima hélzt það með litlum livíld-
um, og nýir og nýir hraunstraumar veltust austur og vestur
um farvegu hraunsins, hlóðust upp, er þeir mættu vötnum,
eða brutu sér framrás lengri veg eða skemmri, þótt nú væri
dregið úr ofurmagni gossins og l'ramrás eldsins niðri í byggð-
inni stöðvuð. Hin nýju hraun voru viða geysiþykk, og hélzt
Jengi ofsahiti undir hraunskorpunni. Og um þessar reginbreið-
ur meira og minna glóðheitra hrauna hröktust vatnsföllin
vegalaus um Janga hríð, allt fram á næsta vor, er Magnús
Stephensen kom austur til rannsókna sinna. Var þá allt hraun-
svæðið enn á kafi í svælu og' reyk frá gosstöðvum og heitum
vatnsaganum, er flæddi innan um hraunin. Gal' hér á að líta
verksummerki eftir mesta hraunflóð, er jarðfræðingar telja,
að komið hafi lir iðrum jarðar í einu gosi. Þorvaldur Thor-
oddsen telur, að flatarmál Skaftárhrauna nái yfir um 10 fer-
hyrningsmílur, en rúrntak þess 400 þús. millj. teningsfeta, auk
um 100 þús. millj. teningsfeta af öslcu og gjalli. Að sjálfsögðu
eru tölur þessar engan veginn nákvæmar.
í gosi þessu eyddust og skemmdust meira eða minna 29
jarðir af öskufalli, hrauni og vatnságangi. Mikið eyddist til
fulls af góðu landi, en flestar byggðust jarðirnar af nýju, sum-
ar fljótlega, aðrar eftir nokkuð langan tíma. En auk þess, sem
hraunin lögðu undir sig mikið land og gott, urðu hér varan-
legar skemmdir af ágangi vatna, er nú voru flæmd úr sínum
fyrri farvegum. Hér hættust svo við skemmdir af rolcsandi úr
árfarvegum, er þurrkazt höfðu upp við hraunrennslið, er
það hreytti farvegum ánna. Bjuggu sveitirnar lengi að þess-
um spjöllum.
Þegar á fyrsta degi eldgossins varð nokkurt öskufall á Síðu
og í Fljótshverfi, og þá þegar og' hina næstu daga gerði úrfelli
öðru hverju, og var regnið blandið- ösku og hrennisteini og
1) M. St.: Kort Beskrivelse etc., Kh. 1785, hls. 27. Safn til sögu ísl. 1' -.
hls. 32.