Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1945, Page 82

Andvari - 01.01.1945, Page 82
78 Þorkell Jólíannesson ANDVARl hún fyrst upp aftur. Hvorki fékkst hreint sólskin eða hreint loft né vindur og ei heldur náttúrlegt náttfall. Ólyktin af loft- inu þangbeisk og ýldulcennd í marga daga, að margir, sérdeilis brjóstveikir, máttu ei né gátu andann dregið af loftinu meir en til hálfs, einkanlega þá sól var ei á lofti. 14.—20. júlí, er eld- urinn brauzt niður fyrir Stapafoss í Skaftá, sást hvorki til lofts né sólar það minnsta af þeirri þykku reyicjareldgufu og svælu, er yfir lá. Eldmessudaginn, 20. júlí, var svo þykk hita- svæla og þoka, sem lagði af eldinum ofan farveg Skaftár, að kirkjan á Kirkjubæjarklaustri sást naumlega úr klausturdyr- unum. Undir júlílok, er austurgjáin tók að gjósa og eldurinn rann fram um farveg Hverfisfljóts austan við Síðuna, fylltist svæðið milli eldanna með reyk og svælu, með óþolandi ódaun og fýlu. Var ólyktin úr vestari eldinum því lík sem þá slökkt er á steinkolum í lceitu, en úr austureldinum sem brenndur væri blautur arfi. Féll úr eldmökknum úldið og söndugt steypi- regn með eldingum og reiðarþrumum. Fyrstu viku september- mánaðar gelck þoka og svæla með regni, þrumum og eldingum. Aldrei sá regnboga um sumamð, frá því eldarnir byrjuðu til 21. sept. Fór þá að draga úr eldgosinu og eldmóðunni. Sól og tungl fengu eðlilega birtu, nerna þegar þau sá i gegnum gufu- mekkina. Lengi vetrar hélzt eldblámi á jörðinni með miklu ó- heilnæmi í grasinu. Lýsingar Jóns Steingrímssonar eru að sjálfsögðu með nokk- uð öðrum hlæ en frásagnir þær, sem fyrr var að vikið. Mestu munar, að allt er hér sterkari liturii dregið og stórfelldara, sandfallið meira og eldsvælan rammari og þykkri. Að öði'U ber ekki í milli. Það er efalaust, að mikið af svælu þeirri, sein grúfði yfir eldstöðvunum 1783, stafaði af því, að hin miklu jök- ulvötn, Skaftá og Hverfisfljót, týndu farvegum sínum, flæddu lit yfir glóandi hraunin og gufuðu upp í ofsahita jarðeldsins. Má nærri geta, að gufan af því, er fúl jökulvötn stikna upp 1 vellandi liraunleðju, muni ekki fara vel í nösum. Um þetta eru Skaftáreldar einsdæmi í eldfjallasögu landsins, eins og reynd- ar sjálf eldmóðan. En um útbreiðslu eldmóðunnar mundi nokkru orkað hafa gífurlegt útstreymi hitans og útþensla lofts-

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.