Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1945, Side 84

Andvari - 01.01.1945, Side 84
80 Þorkell Jóhannesson ANDVAIU ið, sem fyrr var lýst, og með þeim afleiðingum, sem þar getur. Hér skal þó nokkru við bætt. Hannes biskup Finnsson iýsir nokkru nánar spjöllum þeim, sem á gróðri urðu þetta sumar, í ritgerð sinni um hallæri. Blóm og' blöð jurta visnuðu og skorpnuðu. f júlí var birki og fjalldrapalauf svart og skorpið, sem sviðið væri. Skógar dóu suins staðar með öllu þetta ár og bið næsta. Mátti mylja með höndum ofan til miðs kvistina, sem áður voru blómgaðir. Vikur, sandur og brennisteinn féll á jörðina, svo að búpeningur gekk hungraður og eirðarlaus um sumarið. Efst í Biskupstungum var þessi brennisteinsrigning svo megn, að granir og lágklaufir á nautpeningi nrðu gular af því, sem við loddi. Heyskapur varð hinn bágasti, lieyin lítil og menguð óhollustu. Urðu menn að fækka mjög búpeningi haustið 1783, um þriðjung allt að helmingi, einkum nautpen- ingi. Þegar baustið 1783, er fé kom af fjalli, kom í Ijós, að sumt af því var veikt af gaddi og beinabrigzlum, en af jiess háttar veiki hafði þegar um sumarið sýkzt og drepizt alhnargt kvik- fjár í eldsveitum eystra. Því líkir sjúkdómar hafa oft látið á sér bóla í sambandi við eldgos, en aldrei jafnvíða né í jafnstórum stíl, svo að sögur fari af. Hér var vafalaust u.m (fluor)eitrun að ræða, en líklega einnig vane.ldi öðruin þræði. Það er eftir- tektarvert, að í lýsing séra Jóns Steingrimssonar á veikindum kvikfjárins, ber mjög á sömu einkennum og í lýsingu hans á vanheilsu manna, sem eins og hann kemst að orði „ei höfðu nög af gömlum og' beilnæmum mat pestartíð þessa af til enda“. En þau veikindi voru raunar skyrbjúgur á hæsta stigi. Þetta er staðreynd. Náttúrufræðingar geta trúlega skýrt það nokkuð, hver áhrif það hefur á gróður jarðar, er veðri er svo farið suin- arlangt sem hér var 1783, er loftið var þrungið af meira og minna skaðvænum gufum og rylti, en sólar nýtur aldrei með eðlilegum hætti. En er fénaður þreifst ekki af beitinni uni sumarið, var þess enn síður að vænta, að hann þrifist af heyi því, sem ]iá aflaðist, enda varð sú reyndin á. Aftur á móti hélzt fénaður sæmilega af gömlum beyjum, þar sem þau voru tib Um mannfólkið fór á líka leið. A haustnóttum 1783 horiði

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.