Andvari - 01.01.1945, Side 98
94
Samstarf Þjóðvinafélagsins og Menntamálar&ðs
ANDVAitr
um ástæðum getur ekkert bindi komið út á þessu ári, en
síðan verður reynt að hraða þessari útgáíu svo sem kostur er á.
Allar menningarþjóðir leggja áherzlu á ýtarlegar rannsóknir
á náttúru lands síns, enda eru þær grundvöllur undir hagnýt-
ingu náttúruauðæfanna. Hér eru margir náttúrufræðingar
starfandi. En þjóðina vantar enn ýtarlegt lieildarrit um landið.
Er óneitanlega mikil þörf að bæta úr því.
Hin nýja íslandslýsmg er stærsta fyrirtækið, sem þessi bóka-
útgáfa hefur hingað lil ráðizt í. Hún mun verða alls 10 bindi,
450—500 bls. að stærð hvert, í nokkru stærra broti en Saga ís-
lendinga. í fyrsta og öðru bindi verður almenn lýsing á Is-
landi og um niyndun þess og ævi. Þriðja og fjórða bindi munu
fjalla um þjóðhætli. Eimmta til níunda bihdi verða héraða-
lýsingar. Siðasta bindið verður um hálendið og flytur auk
þess efnisyfirlit. —■ Steindór Steindórsson menntaskólakenn-
ari er ritstjóri alls verksins. Gert er ráð fyrir, að fyrsta bindið
komi út á árinu 1947. Hafa þegar verið ráðnir 10 náttúrufræð-
ingar til að semja það. —■ Bráðlega verður hafin áskriftasöfn-
un að jjessu milda ritverki. Verður þá um leið gerð ýtarleg
grein fyrir útgáfunni í heild.
Af þessu stutta yfirliti má sjá, hvert stefnt er með útgáfu-
starfið á næstunni. Útgáfan sækist ekki eftir augnabliksrit-
um, þólt vænleg sé til slcyndisölu, heldur bólcum, sem hafa var-
anlegt gildi og geta sómt sér vel um langan aldur í sérhverju
íslenzku bókasafni.
í október 1945.
Ef ni.
Þorstcinn Gíslason, eftir próf. Alcxander Jóhannesson ...
Lýðveldishugvekja um islenzkt mál, eftir Meistara H. H. .
Við Skaftárelda, eftir próf. Þorkel Jóhannesson .......
Samstarf Þjóðvinafélagsins og Menntamálaráðs, cftir Jón Emil
Guðjónsson
91—94