Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1921, Page 24

Andvari - 01.01.1921, Page 24
20 Norðurreiðin 1849 og síðar. [Andvari. móti fjell »festu«-greiðslan hvað eftir annað af sömu jörð. Grímur amtmaður fór ekki sjálfur varhluta af dómum manna. Norðan úr Eyjafirði bárust sögur af amtmanni, ýmsar ósnotrar; hann veitti mönnum ekki viðtal; sneri út úr fyrir þeim, sem hann talaði við, og heimtaði alt skriflegt, sem kom sjer illa fyrir 1850, þegar allmargir voru lítt skrifandi, þó almenningur ætti að heita læs. Skagfirðingar kölluðu hann harð- stjóra og höfðu eftir Eyfirðingum, að hann hneigðist mjög til drykkjar, væri reiðigjarn mjög, og liti niður á alinenning. Eyfirðingar tóku sig saman um að koma ekki á »festu«-uppboðin; og tókust svo vel samtökin að kúgildisleigur einar voru boðnar í Möðru- velli í Hörgárdal, og það af kvenmanni, sem var hjá amtmanninum á Möðruvöllum. Samtök Skag- flrðinga um að koma ekki á »festu«-uppboðin tókust þeim miklu miður. Síðla veturinn 1848—49 fjekk Gísli Konráðsson nafnlaust brjef frá Hákoni Espólín presti á Stærra-Árskógi, og í því var herhvöt til fundarhalda um landsmál, og líklegast var þar getið amtmannsins. Síra Hákon þekti Gísla frá Frosta- stöðum og hefur trúað honum vel, og þekt Skag- firðinga að því að þaðan var helst framkvæmda von norðanlands. Þetta brjef mun Gísli hafa farið með til Jóns alþingismanns Samsonssonar í Keldudal. Þegar hann hafði borið sig saman við Jón Samsons- son, sem mun hafa neitað, að kveðja til funda undir sínu eigin nafni, þá sendi Gísli Konráðsson eftirrit af brjefinu til vinar síns Tómasar Tómassonar á Hvalsnesi á Skaga, og fleirum mun hann hafa sýnt brjefið, og má mikið vera hafi Sigurður Guðmunds- son á Heiði meðal annara ekki fengið að sjá afrit af því. t*að er heldur ekki ólíklegt, að Tómas Tóm-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.