Andvari - 01.01.1921, Page 34
30
Norðurreiðin 1849 og síðar.
tAndvari.
og biðja yíirvald, sem hún ekki ber traust tii, að
leggja niður embættið. »En óskandi væri, að stjórnin
ljeti ekki þetta mál niður falla; því álítist svo, að al-
þýða haíi farið hjer með ósanngirni og frekju, þá er
skylt að rjetta þess mál, sem fyrir varð, og sýna
mönnum fram á, að slíkar tiltektir tjái ekki. En
reynist hitt, að alþýða hafi haft gildar ástæður til
þess fyrirtækis, og þó farið þann veg sem hún áleit
saklausastan, þá mætti slikt verða öðrum embættis-
mönnum til varnaðar, auk þess, sem það kynni að
koma í ljós, að »ekki er alt gull sem glóir««.
Síra Ásmundur Johnsen dómkirkjuprestur í Reykja-
vik kærði málið fyrir Rósenörn stiftamtmanni. Skömmu
síðar var kvartað yíir því í dómkirkjunni eftir messu,
að ekki heyrðist til prestsins i kirkjunni, það gerði
Sveinbjörn Hallgrímsson, og síra Ásmundur flutti sig
að Odda. Á sömu sveif er álitið, að Þorgrímur Thom-
sen á Bessastöðum hafi hallast. Báðir voru þeir vensla-
menn Gríms amtmanns. Rósenörn lagði fyrir Þórð
Jónasson, sem settur var amtmaður fyrir norðan og
austan, að láta rannsaka norðurreiðarmálið, og það
er haft eftir sýslumanni Eggert Briem, sem það gerði,
að setti amtmaðurinn hafi fremur verið rannsókninni
mótfallinn. Af þvi, sem vitnað hefir verið til úr
Reykjavíkurpóstinum, má skilja, að Þórður Jónasson
hati ekki verið mjög áfram um rannsóknina, og hafi
efast mn að nokkuð það hefði að borið í »norður-
reið«, er saknæmt var að lögum. Lárus Thórarensen
sýslumaður Skagfirðinga baðst undan að rannsaka
málið, og það var þess vegna fengið i hendur Eggert
Briem, sem var nýorðinn sýslumaður Eyjafjarðar-
sýslu, að taka málið fyrir í báðum sýslunum. Síra
Hákon Espóiín skrifaði Gísla Koráðssyni, að Eggert