Andvari - 01.01.1923, Blaðsíða 13
Andvari ]
Hannes Hafstein.
9
Holger Drachmann, og taldist hann um þetta leyli
til Brandesarflokksins, en sýnilegt er það, að kveð-
skapur Drachmanns hefur þá haft mikil áhrif á H.
H., og nokkur aí kvæðum Drachmanns’þýddi hann
þá. snildarvel.
Þessi vakning varð þess valdandi, að nokkrir
ungir íslendingar í Kaupmannahöfn rjeðust í að gefa
út rit, sem þeir nefndu »Verðandi«, og átti það að
færa íslendingum smekk áf hinni nýju skáldskapar-
stefnu, sem nefnd hefur verið »hlutsæjisstefna« (real-
isme) í mótsetningu við hina eldri, sem kölluð hef-
ur verið »hugsæjisstefna« (idealisme, rómantik). Höf-
undar ritsins og útgefendur voru: Gestur Pálsson,
Bertel E. Ó. Porleifsson, Einar Hjörleifsson Kvaran
og Hannes Hafslein. »Verðandi« kom út vorið 1882
og vakti mikla athygli. Kl. Jónsson segir í grein
þeirri, sem áður hefur verið minst á: »Hjer á landi
var hóp þessum tekið með mikilli samúð af yngra
fólkinu, en með megnustu andstygð af öllum hinum
eldri mönnum, svo að menn skiftust í flokka, með
og móti«. Jeg hygg, að hjer sje fullmikið gert úr
»andstygð« eldra fólksins, eða þá, að hún hafl alls
ekki snert það, sein H. H. lagði til ritsins, en það
voru að eíns kvæði, og mörg þeirra eru nú þjóð-
kunn orðin. Jeg man þegar »Verðandi« kom út. Og
jeg man það, að jeg heyrði gamlan prest, sjera
Hjálmar Þorsteinsson á Kirkjubæ í Hróarstungu, lesa
upp hátt og snjalt, fyrir gesti og heimafólk, öll kvæði
H. H. úr »Verðandi« og dást inikið að þeim. Hafði
hann þekt föður Hannesar og áður verið nágranni
hans í Eyjafirði. Ekki hef jeg heldur við lauslega
eftirgrenslan fundið í samtíma blöðum nje ritum
neinn verulegan vott andúðar gegn »Verðandi«.