Andvari - 01.01.1923, Blaðsíða 172
168
Þýsku alþýðuskólarnir nýju.
iAndvari.
En nú getur kennari í stórum skóla sjaldnast haft á
hendi alla kensluna í sínum bekk, og þá vandast par mál-
ið. Enn fremur veldur nemendafjöldinn í hverjum bekk
öðrum örðugleika á pví að framfylgja vinnuskólahugmynd-
inni. Hvernig á hver einstakur nemandi í bekk með 42—
45 börnum að geta notið sinna sérstöku réttinda? Hvernig
á kennarinn, sem stundum kennir að eins einstakar náms-
greinir í bekknum, að geta þekt sérgáfur og upplag hvers
barns? Og hvernig á hann að fara að, pegar hann pyrfti
að skipa pessum sundurleita og misjafna hóp í smærri
deildir eftir gáfnafari? Vér erum orðin fátæk pjóð; vér
verðum að spara og spara. En par sem viljí er, par er
lika vegur. Pó að bæjunum sé ókleift vegna fjárskorts að
breyta hverju kensluherbergi í verkstæði með áhöldum og
verkefni, pá er pó fyrsta roikilsverða sporið stigið. Síðan
á páskum petta ár (1922) hefir í mörgum skólum verið út-
búið sérstakt herbergi fyrir pappa- og trésmíði.
Nú eru dagar hinnar einhliða vitsmunadýrkunar taldir.
Vér viljum hafa manninn allan i heild með vitsmunum,
tilíinningu og vilja. Barnið á að taka lifandi pátt í öllu,
gleði, sorg og aðdáun og alt af sem skapandi og pjón-
andi hluti félagsheildarinnar. En pað verður líka að kunna
að sjá fótum sínum forráð. Kennarinn lætur börnin taka
pátt í að ákveða refsingar, velja hlutverk til heimastarfs,
halda reglu í skólahúsinu, hafa eftirlit með klæðnaði o.s.frv.
Samviskusamur rikisborgari er hugsjón nýtískukennar-
ans, Vér höfum lært pað af hinni óttalegu styrjöld, að
tnenning vor og siðalærdómur voru oss svikular stoðir,
pegar á reyndi. Víðs vegar er nú hrópað á nýja og betri
lifsskoðun.
Nú viija menn ekki lengur skeyta um neinar trúarsetn-
ingar um petta líf eða hið tilkomanda. Án kirkjunnar
hyggjast menn nú að hefja pjóðina til nýrrar siðmenning-
ar; án pess að hirða um gamlar erfðakenningar kirkjunn-
ar vill nú kennarinn starfa. Hann vill vera trjáls, laus við
öll bönd og alt eftirlit. Til aðgreiningar frá hinum gömlu
trúarjátningarskólum kallar hann skóla sinn veraldlegan
skóla.
Samkvæmt fyrirskipun stjórnarínnar eru enn pá kend