Andvari - 01.01.1879, Blaðsíða 24
‘20
II.
BRJEF FRÁ NORVEGI.
1.
Moss, 7. oktbr. 1878.
f>ú veizt, að hjer hefir Chr. Aug. Thorne sína beyki-
stöðu, niðursuðumaður sá, sem hefir sýnt oss íslend-
ingum þá velvild, að bjóðast til að kenna oss ókeyp-
is sína nytsamlegu og mikilsverðu iðn. Jeg hefi að
eins fundið hann að máli sem snöggvast, og tók
hann mjer mjög alúðlega, þegar hann vissi, hvaðan
jeg var. Jeg er sem sje rjett nýkominn hingað til
bæjarins á sænsku gufuskipi, er „Oskar Dickson“
heitir, í höfuðið á hinum víðfræga stórkaupmanni,
sem verið hefir mestur styrktarmaður Nordenskjölds
prófessors til norðurferða hans, svo sem kunnugt er.
Til Gautaborgar kom jeg frá Granton á Skotlandi
með öðru sænsku gufuskipi, sem „Friðþjófur1* heit-
ir, en til Skotlands var jeg á „Cumbrae“, fjárkaupa-
skipi Slimons, frá Akureyri. Skipstjórinn á „Frið-
þjófi“ var mjer hinn alúðlegasti og vildi gjöra mjer
allt til greiða; en mest þótti mjer samt í það varið,
að hann strax að morgni, þegar komið var til Gauta-
borgar — við komum þangað seint um kvöld — fylgdi
mjer upp í borgina til að sýna mjer „dýrð hennar.“