Andvari - 01.01.1879, Blaðsíða 70
66
Brjef frá Norvegi.
Neðan við þessi hjól var stöpull með skrúfum til að
ljetta og þyngja kvarnirnar.
Áburðarmylna þessi er ekki nema ársgömul
og öll tannhjólin til hennar fengin frá Englandi.
jþótti mjer það einkennilegt við þau, að tennurnar á
öllum stærri hjólunum voru úr trje, enda þótt að
hjólgrindurnar sjálfar væru úr járni; komu þannig
alstaðar trjetönnur saman við járntönnur. Er þetta
sjer í lagi haft svo vegna þess, að tönnurnar á ein-
tómum járnhjólum í vjelum, er hart ganga, slitna
fljótt við brúkunina, og þegar tönnurnar eru út-
slitnar, er hjólið ónýtt, en með þessu fyrirkomulagi
slitna að eins trjetönnurnar, og þegar þær eru út-
slitnar getur maður sett aptur aðrar í staðinn, og er
þá hjólið jafngott. í sjálfum hjólhringnum að innan
er nefnilega trje, og í það greyptar tönnurnar, svo
þær má taka úr og láta í aptur þegar vill.
þ>essi áburðarmylna hafði með byggingunni
allri kostað 8000 kr. og malaði hún 15 tunnupoka,
3000 pd., á sólarhring. Hvert hundrað af þorsk-
hausum og dálkum upp og ofan var keypt að fiski-
mönnum fyrir hjer um bil 1 kr. 20 a., og talið, að úr
600 fengist í einn poka (200 pd.). Hver poki var
seldur næstliðið sumar fyrir 16 kr.
Norðmenn hafa bæði fyr og síðar sett sjer ýms-
ar lagareglur um fiskiveiðar sínar, og þær sem nú
gilda um það efni voru fyrir nokkrum árum tíndar
saman í eitt og gefnar út sjertaklega1; gafst mjer
því kostur á, að athuga þær. þessar lagareglur ná
að eins, hvað þorslcveiðina snertir, til norðurlandsins,
en Sunnmæringar hafa ekkert lögmál í því efni. —
Á norðurlandi eru settar umsjónar- eða eptir-
') Oversigt over Litteratur, Love, Forordninger, Reskrifter m. m.
vedrorende de norske Fiskerier. — Udgiven af Th. Boeck. —
Christiania 1866.