Andvari - 01.01.1879, Qupperneq 69
Brjef frá Norvegi.
65
á hinn bóginn er svo mikið annað að gjöra, er nær
liggur og betur mundi borga sig. En jeg fór þó
samt frá Álasundi dálitinn spöl, að Hareide (Har-
aldseiði?) til að sjá eina slíka áburðarmylnu. Og
til þess að jeg skýri frá öllu, er jeg sá, sem snertir
fiskiveiðarnar, þá vil jeg setja hjer fáorða lýsingu
á henni.
Allt fiskraskið verður að þurka vandlega áður
það er malað, og þar eð eigendur þessarar mylnu
kaupa það blautt af fiskimönnum, var þar dálítið
sjerstakt múrhús til að þurka það í. í múrhúsi þessu
var járngrind, hjer um bil alin frá gólfi; undir henni
ein eldstó, sem hita lagði frá um allt húsið þegar
þar var kynnt, og þurkaði raskið á járngrindinni.
Mylnuhúsið sjálft er reisuleg bygging tvíloptuð.
Upp á neðra loptinu eru 2 kvarnir, hjer um bil 2
áln. í þvermál hver. Onnur þeirra rífur í sundur
beinin og skilar þeim hálftuggnum niður á gólf í
gegnum trjerennu; þar tekur við þeim poki. Hon-
um er síðan undið upp á loptið aptur og úr honum
steypt í hina kvörnina, er malar það viðlíka smátt
og stórgert rúgmjöl og skilar því gegnum trjerennu
á sama hátt og hin kvörnin; er þá áburðarmjöl
þetta alveg tilbúið til útskipunar. Vatnshjólið var
7 áln. í þvermál, 2 álnir á breidd og stóð í skúr við
endann á mylnuhúsinu. Möndullinn í því (hjólinu)
gekk í gegnum stafninn á liúsinu og á honum að
innan var stórt tannhjól, 2x/2 alin í þvermál, er greip
í annað tannhjól lítið. Á ásnum i því hjóli var apt-
Ur annað stórt til hliðar, er enn greip í tönnur á
litlu hjóli. Á. endum möndulsins í því hjóli voru
°nnur stór hjól sitt hvoru meg'in með geirmátstönn-
Ulr>, er gripu í hjól með geirmátstönnum á kvarnar-
mondlunum og komu þær á (kvarnirnar) hreifingu.
Andvari V.
5