Andvari - 01.01.1879, Blaðsíða 35
Brjef frá Norvegi.
31
og áttu að lifna og dafna fyrir krapt hins lifanda
vatns.
í grend við Stein renna 2 ár til sjávar og eru
þær vel notaðar. í annari er mjög stór hampspuna-
stofa með fjölda af vjelum. Fátækur maður hafði
byrjað iðn þesssa þarna með lítilfjörlegum spuna-
tólum fyrir liðugum 20 árum, en nú eru þar marg-
ar stóreflis byggingar, þar á meðal 2 snúningsráng-
halar (rebslagerbaner) feikna langir, er hann allt átti
sjálfur. í hinni ánni var malað korn í tveimur hús-
um, eptir sögn nálægt 400 tunnur í sólarhring. Hjer
um bil 40 faðmar eru á milli húsanna, og þráður
strengdur milli efstu loptanna á þeim; á þessum
þræði eru kornpokarnir dregnir í hjólmóður frá neðra
húsinu — sem byggt er fram yfir sjóinn — upp í
það efra, með miklum hraða, og mjölpokarnir send-
ir aptur á sama hátt. Eins og kornmylnan í Moss
hefir vöxt sinn og viðgang af bænum Kristjaníu,
eins hefir þessi það af Björgvinarbæ.
Skólasveinarnir á Steini fara til Björgvinar einu
sinni í viku til að hlýða á fyrirlestra á gripasafninu,
og fjekk jeg, fyrir tilstilli Vilsonar, að vera þar inni
á meðan. Talaði þar fornfræðingur um hin elztu
tímabil Norðurlanda, og skýrði frá ýmsum menjum,
er Norvegur hefði að geyma frá þeim tímum ; en
endaði þar við, er víkingaöldin hófst og landnám
Norðmanna, er hann kvaðst mundu skýra frá næst.
Þessi maður talaði eina klukkustund ; en síðan fór
hópurinn upp á lopt, til að hlýða á frásögn um ýmis
dýr, er annar maður (Jensen dýrafræðingur) las fyrir
Um- Bauð hann mjer, að koma daginn eptir, og
þáði jeg það með þöklcum. Sýndi hann mjer þá
aHar fiskategundir Norvegs, og gaf mjer að skilnaði
l°ðnu (loðnusíld, ,,lodde“) í vínanda, af því hann sá,
að sá fiskur vakti sjerstaklega eptirtekt mína. Jeg