Andvari - 01.01.1891, Blaðsíða 46
44
hafi rekið féð niður, sem þeir tóku. Fyrir innan
þessa gjá kemur aðalhellirinn og' er hanli bæði víð-
ur og hár (20—30-álnir undir lopt). Þar er á miðj-
um veggnum er hraunþrep og hefir það líklega mynd-
azt svo þegar liraunrennslið eptir hellirnum var far-
ið að minnka að nokkuð af yfirborði seinasta hraun-
flóðsins hefir storknað og orðið fast við veggina, á
stallinum eru margar hraunbylgjur, sem sýna að
þar liefir einu sinni verið yfirborð á hrauni. Ef
gengið er eptir stallinum inn af gjánni kemur mað-
ur í fyrsta afhellirinn, þar er frosin tjörn í honum
framan til, en innfrá er brúga af sauðabeinum.
Nokkru innar í aðalhellirnum vinstra megin eru tvö
liellisop hátt uppi i veggnum og er ekki hægt að
komast þar upp nema á einum stað, þessi op sam-
einast fyrir innan hraunsúluna, sem er á milli þeirra
og verða að einum afhellir, dálítið inn 1 þessum af-
hellir er afiangur hringur af steinum og op á hon-
um utan og innan, þar halda menn að Hellismenn
hafi sofið, enda hefir smár sandur verið borinn þar
á gólfið, í þessum hellir er lika beinahrúga. Menn
halda að hér hafi verið víg'ið sem nefnt er í Sturl-
ungu, þar sem 'Urækja var meiddur. Ef gengið er
eptir aðalhellinum fer enn eptir nokkra stund að
koma skíma, því þar er önnur gjáin og er hún jafn
þverhnýpt sem hin fyrri. Þar fvrir innan er hellir-
inn um stund þröngur og mjór, svo víkkar hann
aptur og er þar fyrir innan frosin tjörn og svo kem-
ur þriðja gjáin, þar má komast upp og niður. Þar
fyrir innan er innsti hluti helhsins. Þar er mjótt og
koldimmt og víðast mikill halli niður á við, þar er
ís á gólfinu og sumstaðar háar ískeilur og stórlcost-
legir ísklakkar og er þar sumstaðar mjög fagurt og
einkennilegt. Hellirinn er nú orðinn mjög þröngur