Andvari - 01.01.1891, Blaðsíða 53
51
runnum minni kötlum og' yar 6 álnir á lengcl, 31/* á
breidd og' á að gizka mannliæð á dýpt, annar ein-
faldur var 4 x/8 alin á lengd og 31/* alin á breidd,
hinir flestir minni; í sumum kötlunum er hið neðra
sorflnn skrúfugangur. Flestir eru katlarnir meira og
minna fylltir af hnullungagrjóti og möl, svo eigi verð-
ur með vissu ságt um dýptina fyrr enn upp úr þeim
er tekið, þó er dýpt sumrá líklega um l1/* mann-
hæð; langan tíma og mikið afl liefir vatnið þurft til
þess að sverfa slíka katla í eitilharða blágrýtisklöpp.
Hinn 6. ágúst var þurrviðri nokkurn hluta dagsins
og skoðaði eg þá Barnaborg og Hítárdal. Við fór-
um yfir Hítá rétt fyrir neðan bæinn á Brúarfossi, svo
yflr mýrasund upp að Brúarhrauni, það er bær við
röndina á Barnaborgárhrauni; hraunið er nærri
kringlótt og gígarnir í miðjunni, efri rönd þcss nær
nærri upp undir Skóga, bæi undir Fagraskógarfjalli,
er stutt mýri og mehir milli lirauns og bæja. I
hrauninu er nokkur gróður, lyng, birkihi'íslur og víð-
ir. Eldgígurinn, sem heitir Barnaborg, sýnist til-
sýndar einsog langur hryggur, en er í raun og veru
allt öðru vísi. Við gengum upp á eldgíginn að suð-
vestanverðu, hann er hlaðinn upp úr klepruðiun
hraunlögum og rauðu gjalli, gígskálin er mjög víð
um sig en barmarnir þverhnýptir, en hlið á þeim
niður úr gegn að sunnan og norðan og störkostlegar
traðir eptir rennslið á báða bóga. Frá gígnum er
allgóð útsjón yfir undirlendið i kring, við neðri hraun-
röndina eru tvær tjarnir, og langt þaðan niður að
sjó. Milli Barnaborgarhrauns og Eldbbrgarhrauns
rennur Kaldá um mela niður í Kaldárós, hún kemur
úr Kaldárdal, sem gengur upp á milli Fagraskógar-
fjalls og Kolbeinsstaðafjalls. Kaldárós takmarkast
að utan af löngum eyrum, Gamlaeyri að norðan,