Andvari - 01.01.1891, Qupperneq 69
burt, þeir fóru fyrst að verzla í 15281 2, svo tóku
Danir við 1602 er einokunarverzlunin lcomst á og
var þar verzlað út þá ölcl, en þá lagðist kauptúnið
niður af því Rifsós grynnkaði svo mjög og var 0-
lafsvík löggilt 1687, en þó stóðu verzlunarhúsin um
stund í Rifi eptir það og voru vörurnar fluttar þangað
frá Ólafsvík sjóveg þegar vel gaf. Eptir að einok-
unarverzlunin komst á verzluðu Englendingar samt
töluvert undir Jökli; um miðja 17, öld var mikil
sigling af fiskiduggum enskurn lflngað til lands og
fylgdi þeim opt herskip bæði fram og aptur. Með
duggunum komu oþt enskir menn er verzluðu með
enska vöru, klæði, kersu, álún, ábreiður, hnífa, skæri
og annað, lágu þeir helzt við í Neshrepp á sumrum,
en sumir fóru upp til sveita norður til Hóla eður til
alþingis, en voru komnir með allt sitt í Bei'uvík er
duggurnar komu vestan úr fjörðum á haustin og fóru
svo með þeim aptur-. Af því Snæfellsnes skagar
svo langt út sigla þar mjög mörg skip fram hjá og
opt liggja þar útlendar duggur rétt upp við land-
steina. Árið 1878 í marzmánuði komu nokkrir Norð-
menn á báti til Keflavíkur á Snæfellsnesi, og höfðu
hrakizt frá skipi sínu, sem var á selaveiðum upp við
austurströnd Grænlands3. Plum segir frá eptirfylgj-
andi sögu: 1782 komu tvö útlend skip og lögðust
fyrir sunnan Rif, hugðu menn að þetta mundu vera
Tyrkir en voru þó eigi vissir um það, loks áræddu
nokkrir bátar að róa út að liinu meira skipinu, til
þess að grennslast eptir hverjir þar væru, en þeim
varð þá ekki um sel, því fram á borðstokkana lágu
1) E. Baasch: Forsclnmgen zur liamburgisclien Handels-
geseMchte I. 1889. bls. 106.
2) Árbækur Fspólíns VII. bls. 45-46.
3) ísafold V. bls. 74.
5*