Menntamál - 01.03.1936, Page 42
40
menntAmál
Æfingar með smástafi, sömu tegundar, fara fram á
sama hátt.
Áður en blaðið er strikað, er stærð stafanna og lengd
þeirra upp úr og niður úr linunni ákveðin, og samkvæmt
því línubilið, en það verður að vera breiðara en sam-
anlögð efri og neðri lengd stafanna.
Þá kemur að því að skrifa með stýfðum penna
(to eða ato). Lögun pennans veldur þvi, að drætlir staf-
anna verða misbreiðir.
Bezt er að skrifa þá á töfluna með ferstrendri krit
eða á pappír með blekungi úr aluminium, sem til þess
er gerður. Einnig má velja til þess þunna spæk. Hún er
skorin þvert fyrir og síðan fest tau yfir endann, til þess
að halda i sér blekinu.
Eftirfarandi leturgerð er fremur auðveld og því lieppi-
leg til byrjunar, skrifuð með to-penna.
Það þarf allmikla æfingu til þess að skrifa þessar
leturtegundir. Hér er leiðbeining um, hvernig draga
skal stafina:
Með vaxandi kunnáttu verður meiri tilbreytni og
fegurð.
Fyrirsagnir og upphafsstafir skrifast með stærra letri