Menntamál


Menntamál - 01.03.1936, Side 53

Menntamál - 01.03.1936, Side 53
MENNTAMÁL 51 liægt er að gera siðaboð að innri sainvizkuboðum hvers einstaklings. Sannanir fyrir staðreyndum þeim, sem að ofan greinir, liljóta að hafa hin djúptækustu áhrif á alla uppeldishætti og á skólastarfsemina sérstaklega. Á hinn bóginn er vandinn engan veginn leystur með þessari vitneskju. f fyrsta lagi eru rannsóknirnar á byrj- unarstigi, og því fjölda mörgum spurningum um fé- lagslíf og félagsþroslca harna ósvarað. En auk þess er ekki fullnægjandi að þekkja hin almennu lögmál, sem siðferðis- og vitsmunalíf barnanna þróast eftir. Þekking- in á þessum efnum er ómetanlegur leiðarvísir til þess að beina tilraunum i ákveðnar áttir, en reynslan ein get- ur úr því skorið, hvaða aðferðir skapa börnunum fulf- komnust skilyrði til þroska á hverjum stað og tima. En sú reynsla fæst vissulega ekki með þvi að láta tilviljun og gamlar venjur ráða framkvæmdum. Nú skal vikið að nokkrum tilraunum með sjáKstjórn skólabarna.1) Fyrst verður sagt frá tilraunum þriggja merkra barna- vina, sem allir byrjuðu af ásettu ráði tilraunastarf með fullkomnu stjórnleysi, i þeim tilgangi að kenna börnun- um að meta gildi aga og reglusemi. Þessir uppeldisfröm- uðir eru Langermann í Þýzkalandi, ungfrú Francia á ít- alíu og Chatzky á Rússlandi. Jóhannes Langermann gerði tilraun sína með van- þroska börn árin 1902 til 1906. Skóli hans var i Zehlen- dorf skammt frá Berlín. í skólanum voru 40 nemendur af báðum kynjum, á aldrinum 8—13 ára. Nokkur hluti barnanna voru tornæm, en hin fábjánar. Fyrstu dagana ríkti fullkomið stjórnleysi i skólanum. Langermann beið þolinmóður átekta og lét sér nægja að koma i veg fyrir 1) ASalheimild hinnar sögul. frásagnar er hér fer á eftir er: Adolfe Ferriére, L’Autonomie des Écoliers. 4*

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.