Menntamál - 01.02.1972, Blaðsíða 13
iyrst og í'remst að láta í ljós álit, m. ö. o. að
samjrykkja, hafna eða breyta jreim tillögum eða
verkum, sem einstaklingar eða framkvæmdanefnd
á vegum námsefnisnefndar raunverulega vinna.
Eðlilegt virðist, að þóknun fyrir setu í nárns-
efnisnefnd verði miðuð við ]>á aukavinnu, sem
nefndarmenn þurfa að leggja í fundi og lestur
gagna.
Skipun manna í námsefnisnefnd verði miðuð
við eftirfarandi:
a) 1 námsstjóri, sbr. oíanritað. Námsstjórinn
verði að öllum jafnaði formaður námsefnis-
nefndar, en sé hann tiltölulega óreyndur sem
kennari, virðist öflu eðlilegra, að hann verði
ritari nefndarinnar.
lr) 2—3 fulltrúar kennara, skipaðir samkvæmt
tilnefningu kennarasamtaka. Hér yrði, eftir
því sem við á, um að ræða Samband ís-
lenzkra barnakennara, Landssamband fram-
lialdsskóiakennara, Félag háskólamenntaðra
kennara og í einstökum tilvikum Félag
menntaskólakennara.
Endurskoðun námsefnis og kennslu kemur
að litlu gagni nema kennararnir séu lienni
lilynntir. Samvinna við kennara og samtök
þeirra er Jrví augljós nauðsyn, og virðist full-
komlega eðlilegt að veita kennarasamtökun-
um sem slíkum beina aðild að námsefnis-
nefndum.
c) 1—2 fulltrúar kennaramenntunar, skipaðir
samkvæmt tilnefningu hlutaðeigandi kenn-
aramenntastofnana.
Nauðsyn jress að tryggja frá upphafi sam-
ráð og samstarf milli Jreirra, sem endurskoða
námsefni, og hinna, sem mennta kennara í
hlutaðeigandi námsgrein, liggur svo í augum
uppi, að sérstakur rökstuðningur er óþarfur.
d) 3—4 fulltrúar skipaðir án tilnefningar, og
verði í Jseim hópi bæði sérfræðingar í við-
komandi grein og sérfræðingar í kennslu
greinarinnar (kennarar). Formaður náms-
efnisnefndar korni úr Jressum hópi, sé náms-
stjórinn ekki formaður, en ella ritari.
e) 1 námsmatssérfrœðingur.
2. Framkvæmdanefnd
Innan liverrar námsefnisnefndar starfi fram-
kvæmdanefnd þriggja til fjögurra manna, og
vinni hún verkið upp í hendur stóru nefndar-
innar, ]). e. sernji drög að obbanum af því, sem
námsefnisnefndin þarf að skila, og leggi tillögur
sínar fyrir hana, sbr. 5. lið hér á eftir.
í íramkvæmdaneínd eigi sæti námsstjóri og
tveir eða þrír nefndarmenn aðrir, og skal a. m. k.
einn Jreirra vera viðurkenndur sérfræðingur í
hlutaðeigandi gein, en annar reyndur kennari í
námsgreininni. Námsstjóri verði formaður fram-
kvæmdanefndar.
Til Jress að koma til greina sem fulltrúi í fram-
kvæmdanefnd Jrarf nefndarmaður að geta unnið
reglulega a. m. k. 30% af fullu starfi við verk-
efnið.
3. Ráðunautar
Sérhver námsefnisnefnd eða framkvæmdanefnd
hennar kallar sérfróða aðila á sinn fund til ráð-
gjafar um ýntis atriði, sem nauðsynlegt er að
kanna í sambandi við endurskoðun námsefnis.
Sem dæmi um slík atriði mætti nefna:
a) námsaðgreiningu eftir getu og persónugerð
nemenda;
b) sérstök kennsluvandamál í strjálbýli/í Jrétt-
býli;
c) námsleiðsögn;
d) framsetningu námsefnis: myndrænt efni,
liljóðritað efni o. s. frv.
Ráðunautar geta verið fáir eða margir eftir
þörfum og koma þeir á fundi eða vinna einstök
verk í samræmi við ákvarðanir þeirrar nefndar,
senr kallar Jrá til aðstoðar.
4. Höfundar
Hver námsefnisnefnd ræður úr sínum hópi eða
utan að frá höfunda til að semja tilraunanáms-
efni í samræmi við námsmarkmið Jrau og náms-
skrá, sem nefndin hefur komið sér saman urn.
Ráðningarform höfunda verði „akkorð“ með
skýrum ákvæðum um skilafrest handrita. Áherzla
verði lögð á það, að liöfundar séu ekki einangr-
aðir, meðan á verki Jreirra stendur, heldur hafi
nokkrir höfundar verkaskiptingu um heildarstarf
MENNTAMÁL
7