Menntamál - 01.02.1972, Blaðsíða 66
Af orðalagi að dæma er Eiríkur
orðinn leiður á þeim feðginum Þor-
birni og Guðríði, þótt hvergi komi
það fram.
Á bls. 22 er málvilla eða prent-
villa, þótt að í stað þó að, en ann-
ars er prófarkalestur með ágætum.
Baltasar hefur gert myndirnar,
sem sögunni fylgja. Myndir í
kennslubók eiga að þjóna efni bók-
arinnar. Þær eiga að gera lesend-
um efni bókarinnar ljósara og efla
ímyndunarafl þeirra. Teikningin
þarf að lýsa efninu, skírskota til
Jress og vera í samræmi við efni.
Þetta tekst Baltasar misjafnlega. Á
bls. 6—7 er skrípamynd af heiðar-
legu einvígi Leifs og Þorfinns. Á
bls. 34 segir frá Þorbjörgu lítil-
völvu og hún sögð lág og gildvax-
in, en á bls. 35 er mynd af henni
við seiðinn, grindhoraðri. Hinn
stórvaxni höfðingi Skrælingja er
orðinn dvergur smár í viðureign-
inni við griðunginn á myndinni á
bls. 89.
Ekki verður Ijóst, hvernig höf-
undur ætlast til að bókin sé notuð.
Á bókarkápu stendur að bókin sé
„hentug til viðbótar námsefni í
Islandssögu og vel til þess fallin
að glæða áhuga ungu kynslóðarinn-
ar á fornsögunum". Erfitt er að
vita, livernig sagan verður hentug
sem viðbótarefni í íslandssögu, J)ar
sem höfundur fellir margt niður,
sem stendur í Eiríks sögu rauða og
Grænlendingasögu, og bætir við lýs-
ingum og orðaskiptum. Þá má geta
J^ess að Eiríkssaga er nú talin
ótraust sagnfræðileg heimild, og
saga Ármanns er skáldsaga, sem
lýtur að nokkru lögmálum sinnar
gerðar. En líklegt er að sagan glæði
áhuga lesenda á fornsögum. Engar
orðaskýringar íylgja sögunni, og
nemendur munu víða hnjóta um
orð, sem Jteir skilja ekki. Bókina
verður Jjví að lesa undir leiðsögn
kennara.
Ef farið er á annað borð út á þá
braut að kynna Islendingasögurn-
ar börnum, Jjarf mjög að vanda til
þess verks. Skálholt hefur gefið út
nokkrar sagnanna fyrir framhalds-
skóla. Þessum útgáfum fylgja rit-
gerðir útgefenda um sögurnar,
orðaskýringar eru neðanmáls og
verkefni úr hverjum kafla. Þessar
útgáfur liafa reynzt hentugar í
framhaldsskólum. Annað mál er
hvað hentar börnum. I fljótu
bragði virðist einföldun efnis vera
æskileg leið. Þannig gefa Englend-
ingar út sínar mestu bókmennta-
perlur í stuttum, einföldum útgáf-
um með orðaskýringum og verkefn-
um.
Ríkisútgáfa námsbóka Jjarf að
móta sér stefnu í þessum efnum.
Með útgáfu Jjessarar sögu verður
ekki ljóst livaða kennslufræðileg
markmið ráða hér ferð, eða hvort
lengra verður haldið á Jjessari
braut.
Prentun bókarinnar er ágæt, en
hætt er við að hún losni fljótt úr
bandi.
Haukur Sigurðsson.
Frá Landssambandi
framhaldsskólakennara:
Kennarar og skólastjórar, sem óska eftir orlofsdvöl í húsum L.S.F.K. að
Munaðarnesi í Borgarfirði n.k. sumar, sendi fyrir 1. apríl umsóknir til skrif-
stofu L.S.F.K., Tjarnarg. 10b, Reykjavík.
í umsókninni skal greina eftirfarandi: Fjölskyldustærð og mánaðardaga,
frá laugardegi til laugardags, sem umsækjandi óskar að dvelja. Gert er
ráð fyrir vikudvöl í senn.
Orlofstími hefst 20. maí.
L.S.F.K. hefur yfir tveimur húsum að ráða, og hverju húsi fylgja öll nauð-
synleg húsgögn, rúmföt og tæki til matseldar. Fæði fæst einnig keypt í
sameiginlegu mötuneyti, ef óskað er. í hverju húsi geta búið 8 einstaklingar
samtímis. Mjög heppilegt er, ef 2 fjölskyldur sammælast um dvalartíma
í sama húsi. Vikuleiga á hús er kr. 3000,00.
Orlofsnefnd
\_____—-------------------------------------------------------------------------------------
MENNTAMÁL
60