Menntamál - 01.02.1972, Blaðsíða 59
Eru einhverjar breytingar á döfinni í sam-
bandi við rekstur og námsfyrirkomulag skól-
ans?
Því er ekki að neita. Síðastliðið vor skipaði
þáverandi menntamálaráðherra nefnd til að
„gera tillögur um framtíð Fóstruskólans og
tengsl hans við hið almenna fræðslukerfi.“
Var þessi nefnd skipuð samkvæmt ósk skóla-
stjóra Fóstruskólans og skólanefndar hans.
Þessi nefnd hefur þegar tekið til starfa og
mun gera tillögur m.a. um, að skólinn verði
ríkisskóli og að auknar verði inntökukröfur í
skólann. Ég hef og margar tillögur fram að
færa varðandi breytingar á námsfyrirkomu-
lagi skólans, en það er ekki tímabært að segja
frá þeim, þar eð þær hafa ekki verið ræddar
til hlítar í nefndinni ennþá. Nefnd þessa skipa
Sigurður Flelgason, stjórnarráðsfulltrúi í
menntamálaráðuneytinu, tilnefndur af ráðu-
neytinu, Kristján Gunnarsson, skólastjóri, til-
nefndur af Reykjavíkurborg, Svandís Skúla-
dóttir, fóstra, tilnefnd af Fóstrufélagi íslands,
Ásgeir Guðmundsson, tilnefndur af Barnavina-
félaginu Sumargjöf, og svo skólastjóri Fóstru-
skólans.
Hvaða inntökuskilyrði verða sett eftir ykkar
tillögu?
Stúdentspróf eða gagnfræðapróf að við-
bættu tveggja ára framhaldsnámi, t.d. sam-
bærilegu við framhaldsdeildir gagnfræðaskól-
anna. Ég vil taka það fram, að ég sem skóla-
stjóri Fóstruskólans hef engan áhuga á að
einskorða inntökuna við stúdentspróf, svo
mjög sem ég þó sækist eftir að fá fólk —
að sjálfsögðu bæði pilta og stúlkur — með
góða undirstöðumenntun. Ég álít heppilegra
að fá margs konar fólk, fólk með mismun-
andi bakgrunn.
Hvað um framhaldsmenntun fyrir fóstrur?
Hér á landi er ekki um neina sérstaka fram-
haldsmenntun að ræða fyrir fóstrur. Það er
heldur ekki svo ýkja langt síðan framhalds-
menntunar var kostur á hinum Norðurlönd-
unum. Danir voru fyrstir til að koma á „Árs-
kursus“ við kennaraháskólann í Kaupmanna-
höfn. Mig minnir, að þessi starfsemi hafi
byrjað 1960. Þetta er almennt framhaldsnám
fyrir fóstrur. Taka margar forstöðukonur eða
verðandi forstöðukonur þátt í þessu námi,
svo og verknámsleiðbeinendur eða fóstrur,
sem eru kennarar við fóstruskólana þar í
landi. Ein íslenzk fóstra, Sólveig Björnsdóttir,
hefur lokið námi við „Árskursus“ og kennir
nú við Fóstruskólann. Önnur fóstra íslenzk
stundar þar nám í vetur.
í Svíþjóð gefst fóstrum kostur á framhalds-
námi við kennaraháskólana í Stokkhólmi og
Malmö í meðferð afbrigðilegra barna, svo sem
taugaveiklaðra, heyrnarskertra, vangefinna,
fatlaðra og lamaðra, svo og meðferð barna á
sjúkrahúsum. Svíar leggja mikla áherzlu á
að fá fóstrur til starfa á barnadeildum sjúkra-
húsa, og verð ég að segja, að ég tel það
einnig knýjandi þörf hér á landi. Þess má
geta, að vísir er að slíku námi á vegum Barna-
deildar Landspítalans, og hafa tvær fóstrur
tekið þátt í því.
í Noregi eiga fóstrur einnig kost á svipuðu
framhaldsnámi varðandi afbrigðileg börn við
Statens Spesiallærerskole í Oslo. Þaðan hef-
ur ein íslenzk fóstra lokið námi varðandi
heyrnarskert börn. Kennir hún nú við Heyrn-
leysingjaskólann í Reykjavík. Margvísleg
námskeið eru að sjálfsögðu haldin á Norður-
löndum fyrir fóstrur, bæði varðandi heilbrigð
börn og afbrigðileg.
Þakka þér fyrir, Valborg, og megi Fóstru-
skólinn blómgast og dafna.
MENNTAMÁL
53