Menntamál


Menntamál - 01.02.1972, Blaðsíða 63

Menntamál - 01.02.1972, Blaðsíða 63
Minnt á frumatriði Meðal atliyglisverðra framlaga til þeirrar byltingar- hreyfingar í skólamálum, sem er þáttur í yfirstand- andi menningarbyltingu í Bandaríkjunum, eru tvær bækur, sem kennarinn John Holt hefir skrifað um kennarareynslu sína og athuganir á hegðun og líðan nemenda í kennslustundum: How Children Fail og How Cltildren Learn. Báðar bækurnar hafa komið út lijá Penguin-forlaginu. Eftirfarandi greinar eru úr niðurstöðukafla fyrri bókarinnar. Mikið af ]rví sem við gertim í skólunum, bygg- ist ú hugmyndum, sem orða mætti eitthvað á þessa leið: (1) í hinu gífurlega safni mannlegrar þekkingar eru viss brot og molar, sem telja má ómissandi og allir ættu að vila; (2) hvort maður teist meira eða minna menntaður, hæfur til að iifa skynsantlega í Jieimi nútímans og verða að gagni í samfélaginu, fer eftir því, ltve mikið af þessari ómissandi þekkingu liann ber á sér; (3) það er því skylda skólanna að koma inn í liöí- uðið á börnunum eins miklu af þessari ómiss- andi þekkingtt og mögulegt er. Fyrir vikið erum við að reyna að troða vissum staðreyndum, for- skriftum og hugmyndum ofan í liverl einasta skólabarn, livort sem það langar í bitann eða ekki, þó það sé hrætt við hann eða bjóði við honum og þó til sé annað, sem það ltefir miklu meiri álmga á að læra. I’essar skoðanir okkar eru fráleit og skaðvæn- leg vitleysa. Um sanna menntun og raunverulegt nám verður þá fyrst að ræða í skólum okkar, þegar þessari vitleysu ltefir verið rutt úr vegi. Skólar ættu að vera staðir, þar sem börn læra það, sent þau langar mest að vita, en ekki það, sem við liöldum að þau eigi að vita. Barn, sem lærir eittlivað, sem það langar til að vita, man það og notar það; barn, sem lærir eitthvað til þess eins að gera öðrum til geðs eða hafa liann góðan, gleymir því jafnskjótt og ekki er lengur nauðsynlegt að gera honum til geðs eða hættu- legt að hafa liann ekki góðan. I>að er þess vegna, að börn gleyma megninu af því, sem þau læra í skólanum. Þau hafa ekkert gagn af því og eng- an áliuga á því; þau langar ekki að muna það, þau búast ekki við að muna það og þau ætla sér ekki einu sinni að muna það. Eini munur- inn á góðum og lélegtun nemendum í þessu til- liti er sá, að lélegu nemendurnir gleyma strax en góðu nemendurnir passa sig að bíða með það fram yfir próf. Þótt ekki kæmi annað til, væri okkur óhætt að kasta burt ílestu af því, sem við kennum í skólunum, því að börnin kasta því næstum öllu burt hvort eð er. Hvernig getum við sagt, að eitt þekkingaratriði sé mikilvægara en annað, svo ekki sé á það minnzt, sem við í rauninni segjum, að sum þekk- ing sé ómissandi en allt liitt einskis nýtt, að því er skólann varðar. Ef barn langar að læra eittlivað, sem skólinn vill ekki kenna því og get- ur ekki kennt því, þá er því sagt að vera ekki að eyða tírna til ónýtis. En livernig getum við sagt, að það, sem barnið langar til að vita, sé minna virði en það, sem við viljum að það viti? Hversu stórt brot af allri mannlegri þekkingu er liægt að tileinka sér áður en skédagöngu lýkur? Kannske einn milljónasta. Eigum við þá að trúa því, að einliver einn af milljónustu hlutum þekk- ingarinnar sé svona miklu mikilvægari en ein- liver annar? Eða að ráðin verði bót á vandræð- um samfélags og þjóðar, ef okkur aðeins tekst að finna leið til að senda út úr skólunum börn, sem vita tvo milljónustu at heildinni en ekki bara einn milljónasta? L MENNTAMÁL 57
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.