Menntamál


Menntamál - 01.02.1972, Blaðsíða 65

Menntamál - 01.02.1972, Blaðsíða 65
♦-----------------------------------------------------------------♦ LEIFUR HEPPNI Höfundur: Ármann Kr. Einarsson Teikningar: Baltasar Útgefandi: Ríkisútgáfa námsbóka. 4-----------------------------------------------------------------1 Ýmsurn hefur orðið það íhugun- arefni, hvernig eigi að búa Islend- ingasögur svo úr garði að hörn og unglingar fái áhuga á efni þeirra og lesi þær sér til ánægju. Efni þeirra er hinum ungu lesendum framandi, það þjóölíf, sem sögurn- ar lýsa, er löngu horfið, nafnaroms- ur verða þreytandi og stafsetning sú, sem tíðkazt liefur á útgáfum sagnanna, hefur verið þeim frá- hrindandi. Þótt þær hafi verið um aldir lielzta lesefnið í sveitum lands- ins ásamt fornaldarsögum Norður- landa, sálmum Hallgríms og prédik- unum meistara Jóns, er sú tíð löngu horfin. Sú þjóölífsbylting, sem orðið hefur hér á landi síðustu áratugina, flóð hóka og blaða ásamt sterkum áhrifum annarra fjölmiðla, valda því að þessar gömlu sögur standa nú höllum fæti. En vissulega eiga þær fullt erindi við liina ungu lesendur eins og allar góðar sögur. Vandinn er því að finna það útgáfuform, sem gerir sögurnar lifandi í hugum hinna ungu lesenda. Nú hefur hinn ágæti barnabóka- liöfundur, Ármann Kr. Einarsson, skrifað sögu um Leif heppna. Höf- undur segir frá eftir Eiríks sögu rauða og Grænlendingasögu, fylgir atburðarás í meginatriðum, sleppir úr ýmsum persónum, sem gera efn- ið of flókið fyrir börn, og bætir við atburðum, einkum frá bernsku Leifs og félaga hans. Orðaskipti og frásögn er einföld, lýsing atburða þægileg og eðlileg. En fátt verður þó spennandi nema frásögnin af viðureigninni við Skrælingja í lok sögunnar. Eiríkur rauði verður í þessari sögu heldur sléttur og felldur; of- stopamaðurinn er horfinn. Hann þarf að berjast við fjendur, en ekki verður með öllu ljóst hvers vegna. Þórgestur á Breiðabólstað verður heiftúðugastur, en þó veit lesand- inn ekki livað því veldur. Eystri byggð setur höfundur niður á aust- urströnd Grænlands, en fram til þessa liafa eystri byggð og vestri byggð verið á vesturströnd Græn- lands, sú eystri fyrir sunnan j)á vestri. Þetta gerir ekki annað en rugla nemendur, sem munu læra meira um þetta allt seinna. Á tveim stöðum er skrítilega að orði komizt. Á bls. 42 segir frá siglingu Leifs frá Grænlandi til Noregs. Þar stendur: „Leifur mið- aði stefnuna sunnan við ísland, og á sjötta dægri sá hann í norðri hvíta jökulhettu bera við bláan himin. Hann taldi víst, að það væri hæsti hnjúkur landsins, Oræfajök- ull.“ Af orðalaginu verður helzt ráðið, að Leifur hafi vitað að Ör- æfajökull er hæsta fjall landsins, sem er nokkuð erfitt að skilja. Á bls. 40 segir frá því, er Þorbjörn og dóttir hans Guðríður koma í Brattahlíð eftir vetursetu á Herj- ólfsnesi. Verður fagnaðarfundur með þeim Eiríki. Leifur er að búa skip sitt til siglingar og má engu öðru sinna. Síðan segir orðrétt: „Síðan var Leifur þotinn niður að skipi, en Eiríkur rauði varð að halda uppi samræðum við gestina." maður. Tók hann mikinn þátt í kristilegu starfi og safn- aðarlífi og stjórnaði meðal annars Biblíulesflokki í 25 ár. Ekki bar hann þetta utan á sér, fremur en aðra kosti sína. Menn urðu að kynnast honum vel til að sjá, að grundvöllur þessa óvenjulega manns, og það sem mót- aði líf hans á svo heilbrigðan hátt, var Jesús Kristur. Hann vildi lifa eftir orðum Frelsarans, og voru þau hjónin bæði mjög samstillt í því. Hjálpsemi þeirra beggja hefur verið sérstök. Þeir eru margir íslenzkir vinir þeirra, sem á margvíslegan hátt hafa notið gestrisni og hjálpsemi þeirra. Ég er einn þeirra, er stend í mikilli þakkarskuld við þau hjón. Þau hafa sýnt mér og konu minni þá vináttu, sem aldrei verður með orðum þökkuð. Það er margs að minnast, margt fyrir að þakka. íslenzkir vinir senda Gretu Flensted-Jensen og börnum þeirra hjóna, ásamt aldraðri móður hans, innilegar samúðarkveðjur. Bjarni Ólafsson. MENNTAMÁL 59
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.