Menntamál


Menntamál - 01.02.1972, Blaðsíða 44

Menntamál - 01.02.1972, Blaðsíða 44
Árið 1967 kom Scrieven fram með hugmynd- ina urn notkun einingaprófa (formative tests) til leiðsagnar í námsskrárgerð. Einingaprófin þró- uðust sem hluti af hlítarnámi, og er því nauð- synlegt að gera því hugtaki nokkur skil til glöggv- unar á gilclí einingaprófa fyrir efnismat. Hlítarnám (Mastery Learning) Þótt kenningin um hlítarnám eigi sér forsögu allt frá 1920, þróast hún fyrst að ntarki eftir að }. R. Carroll (1963) setti fram kenningu sína um námsstig: ( tími, sem varið er til náms \ Námsstig = f ------------—-----r T ) \ tími, sem nemandinn part ) (time actually spent \ ■------------------ time needed / Þetta samsvarar því, að námsárangurinn sé háð- ur því, hvort nemandinn íær þann tíma, sent hann þarfnast til námsins. Benjamin Blooni kont hugmynd Carrolls í framkvæmd, en í nokkuð breyttri mynd. Hlítarnám er samkvæmt lians skil- greiningu (1968) námsaðferð, sem veitir flestum nemendum umbun erfiðis og góðan árangur í námi. Bloom telur, að hlítarnám gefi 75—90% nemenda tækifæri til að ná sama marki og aðeins 25% ná í venjulegri kennslu. Hann heldur því einnig fram, að hlítarnám stuðli að virkara námi, auknum áhuga, jákvæðara viðlioríi til námsins í heild og bættri geðheilsu nemenda. Reynist þetta rétt, má ætla að hlítarnám geti að ein- hverju leyti leyst vanda skólanna, sem Block bendir á í bókinni Mastery Learning (1971), en þar segir hann meðal annars, að þrátt fyrir mikl- ar framfarir og aukna þekkingu á námi haldi skólarnir áfram að sjá aðeins þriðjungi nemenda íyrir námsaðstöðu, sem leiði til ánægjulegrar og árangursríkrar námsreynslu (bls. 2). Block getur þess einnig, að rannsóknir síðari ára gefi til kynna, að meirihluti nemenda þurfi að standa andspænis mistökum og vonbrigðum ár eftir ár. Hann segir ennfremur: „Nemendur, sem ekki eru færir um að mæta námskröfum skólans, eru líklegir til að þróa neikvæða sjálfsmynd (self concept) .... Um 20% þeirra, sem þola verða niðurlægingu, vonbrigði og örvæntingu og standast ekki kröfur skólans, gætu hlotið af því geðrænan skaða.“ í skýringum á hlítarnámi gerir Bloom (1971) ráð fyrir því, að ef hæfileikar nemenda væru eðlilega dreifðir („normal" kúrfa) og kennslu- tíminn liinn sami fyrir alla, þá mætti reikna nreð að dreiíing námsárangurs væri svipuð dreif- ingu hæfileika: Verulegt samræmi væri því milli liæfileika og námsárangurs (r = 0.70). Á hinn bóginn telur lrann, að ef reiknað væri með eðlilegri dreifingu hæfileika, en hver ein- stakur nemandi nyti þeirrar beztu kennslu, sem völ er á, og fengi þann tíma, sem hann þarfn- aðist til námsins, þá yrði lítil samsvörun milli hæfileika og námsárangurs á afmörkuðu sviði. Fylgnin myndi nálgast núll: Aðferðir Blooms í hlítarnámi eru miðaðar við bekkjarkennslu, þar sem námstíminn er bund- inn í einstökum greinum og lítið svigrúm til aukakennslu hinna seinfærari. Viðmiðun í hlítarnámi er skilgreind með rnark- MENNTAMÁL 38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.