Menntamál - 01.02.1972, Qupperneq 34
Baldur Ragnarsson:
Málið
sem
atferli
4---------------------------------4
MENNTAMÁL
28
í maímánuði 1969 tók til starí'a á vegum skóla-
rannsóknadeildar þriggja manna nefnd, sem
skyldi semja drög að nýrri nánrsskrá fyrir bók-
menntakennslu og framhaldsþjálfun í lestri í
barna- og gagnfræðaskólum. Nefnd jressa skipuðu
eftirtaldir menn: Finnur Torfi Hjörleifsson,
Óskar Halldórsson og Sírnon Jóh. Ágústsson.
Lauk hún störfum í lok ágústmánaðar s. á. og
hafði þá samið drög að námsskrá um oíangreind
efni. Eitt hlutverk þessarar nefndar var að leggja
fram tillögur að vinnutilhögun við samantekt
lestrarbóka. í framhaldi af því fóru fram við-
ræður nreð forstöðumönnum skólarannsókna og
Ríkisútgáfu námsbóka um hugsanlegt samstarf
við undirbúning að útgáfu nárns- og lestrarbóka
til notkunar við móðurmálsnám. Er nú þegar
öruggur grundvöllur fyrir slíku samstarfi.
I^jóst var, að með þessum aðgerðum höfðu ein-
ungis fyrstu skrefin verið stigin til umfangsmeiri
athugunar á nárni og kennslu móðurmálsins al-
mennt, einkunr á skyldunámsstigi. Því var það,
að ákveðið var á s. I. hausti að ráða mann til
að semja álitsgerð um þau efni á vegunr skóla-
rannsóknadeildar. Var undirritaður fenginn til
þessa starfs, senr hófst 1. september. Hef ég verið
beðinn af ritstjórn Menntamála að gera nokkra
grein fyrir þessu verkefni nrínu.
Sanrning álitsgerðar slíkrar sem að ofan getur
er vissulega ærið verk og margþætt. Ætlazt er til,
að athuguð verði og gerður samanburður á mark-
miðum og námsskrám í móðurmálskennslu á ís-
landi og í nokkrunr völdunr löndum öðrunr. Til-
raun skal gerð til nýrrar skilgreiningar móður-
nráls, þar sem megináherzla sé lögð á málið sem
atferli, er stuðli að auknum vitrænunr þroska og
persónulegu manngildi. Áherzla skal lögð á heild-
rænan skilning á móðurmálsnámi, á innbyrðis
tengsl hinna ýnrsu þátta þess og á tengsl þess
við nám í öðrunr greinum. Gerðar skulu tillögur
um nreginnrarkmið og sérstök námsmarkmið,
kennsluaðferðir og námstilhögun og eínisinntak
nánrs í íslenzkri málnotkun og bókmenntum á
skyldunámsstigi, svo og námsbókagerð. Að lok-
um skulu sanrin drög að franrkvæmdaáætlun fyrir
áframhaldandi endurskoðun þessa margþætta við-
fangsefnis. Að sjálfsögðu er til þess ætlazt, að