Menntamál - 01.02.1972, Qupperneq 49
Þuríður J. Kristjánsdóttir:
Hvenær
má
treysta
prófum?
Þegar efni þessa heftis Menntamála var ákveð-
ið, var mælzt til þess, að ég skrifaði pistil um
tvö meginatriði allra mælinga: áreiðanleika
þeirra og gildi, einkum |)ó þann skilning, sem í
þessi hugtök er lagður i prófum og öðrum mæl-
ingum í skólastarfinu.
ÁREIÐANLEIKI. Þá er mæling fullkomlega
áreiðanleg, þegar hún endurtekin gefur sömu út-
komu og áður. Nákvænnir smiður, sem bregður
tommustokki á fjöl, les af honum sömu lengd,
hve oft, sem hann mælir. Sú yrði og trúlega
raunin, þótt tveir menn mældu, þótt tveir
tommustokkar væru notaðir eða dagur liði milli
mælinganna. Mælitækið er öruggt, framkvæmd
mælingar einföld, niðurstaða áreiðanleg.
Enginn býst við jafn áreiðanlegri niðurstöðu,
þegar mældir eru eiginleikar manna, kunnátta
þeirra eða afköst. Kemur þar margt til. Það, sem
mæla á, er óhlutlægt. Þá er það breytingum
undirorpið, stundum allhröðum. Ekki er hægt að
vita, livar kunnáttan eða eiginleikinn á sér upp-
haf, svo ekki er hægt að mæla frá núllpunkti.
Það er ekki einu sinni hægt að búa lil mælitæki
með jöfnum stigum. Allir centimetrar tommu-
stokksins eru jafn langir, en sama er ekki hægt
að segja um stig hinna ýmsu mælikvarða, sem
lagðir eru á mannlega eiginleika eða kunnáttu,
þótt oft sé látið sem svo sé. Þá er aldrei hægt
að mæla nema takmarkað sýnishorn þessara
þátta, og bætist þá við sá vandi að velja slíkt
sýnishorn.
Rétt er að gera sér grein fyrir, áður en lengra
er haldið, að áreiðanleiki á við niðurstöður mæl-
inga, ekki mælitækið sjálft. Jafnan verður að
geta þess, hvernig áreiðanleiki var reiknaður, þar
sem niðurstöður fengnar með sama mælitæki,
t. d. sama prófi, geta verið mjög áreiðanlegar
undir vissum kringumstæðum, en tiltölulega
óáreiðanlegar undir öðrum. Þegar talað er um
áreiðanleika prófa er það í rauninni áreiðanleiki
prófniðurstöðu, sem við er átt.
Áreiðanleiki í ofangreindri merkingu er töl-
l’ræðilegt hugtak. Hann er fundinn með útreikn-
ingi og ýmist gefinn upp sem áreiðanleikastuðull
eða stadalvilla.
MENNTAMÁL
43